Fávitar í spennitreyju (2003)

Fávitar í spennitreyju

Hljómsveitin Fávitar í spennitreyju úr Rangárþingi (líklega Hvolsvelli) var meðal þátttakenda í Músíktilraunum Tónabæjar vorið 2003.

Sveitina skipuðu þeir Árni Rúnarsson söngvari, Ómari Smári Jónsson gítarleikari og söngvari, Jón Óskar Björgvinsson bassaleikari og Andri Geir Jónsson trommuleikari.

Fávitar í spennitreyju komust ekki áfram í úrslit keppninnar.