ÚFÓ
(Lag / texti: Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson og Jakob F. Magnússon)
Við sáum ÚFÓ uppi‘ á heiði‘ í gær
og út úr honum stigu verur tvær.
Þær spurðu hvort við ættum nokkuð eld
að kveikja upp í kveld.
Þær buðu‘ okkur í ÚFÓ-inn sinn inn
og helltu upp á uppáhellinginn.
Fram þær reiddu hálfmána og kex
og astraltertur sex.
Þið verðið að trúa‘ okkur, við segjum það satt,
stóreflis ÚFÓ af himnum ofan datt,
við hefðum tekið myndir en höfðum engan kubb,
sönnunargagnið er astraltertugubb!
Astraltertugubb?
Já, astraltertugubb!
Að gæta laga‘ og réttar er vort fag,
við sendum þetta suður strax í dag.
Sýnið fer til athugunar þar
og efnagreiningar.
Já en þið verðið að trúa‘ okkur, við segjum það satt,
stóreflis ÚFÓ af himnum ofan datt,
við hefðum tekið myndir en höfðum engan kubb,
sönnunargagnið er astraltertugubb!
Astraltertugubb?
Já, astraltertugubb!
Þið verðið að trúa‘ okkur, við segjum það satt,
stóreflis ÚFÓ af himnum ofan datt,
við hefðum tekið myndir en höfðum engan kubb,
sönnunargagnið er astraltertugubb!
Astraltertu-, astraltertu-, astraltertu-,
astraltertu-, astraltertugubb.
Sagðirðu gubb?
Við sögðum astraltertugubb…
[af plötunni Með allt á hreinu – úr kvikmynd]