Kór var starfandi innan Ungmennafélagsins á Akranesi undir stjórn Svöfu Þorleifsdóttur skólastjóra á sínum tíma.
Ekki er að fullu ljóst hvenær þessi kór var starfandi en Svafa bjó og starfaði á Akranesi um tuttugu fimm ára skeið, á árunum 1919 til 1944 og því hefur kórinn verið starfandi á því tímabili. Eins gætu fleiri stjórnendur hafa komið að stjórnun hans.
Óskað er eftir frekari upplýsingum um Ungmennafélagskórinn á Akranesi.














































