Stjörnukórinn [2] (2003)

Haustið 2003 var stofnaður kór í Njarðvíkum undir stjórn Natalie Chow kórstjórnanda og tónlistarkennara en hann var skipaður börnum á aldrinum þriggja til fimm ára, kórinn hlaut nafnið Stjörnukórinn.

Upplýsingar um þennan kór eru af afar skornum skammti, hann starfaði þó að minnsta kosti fram að jólum og hélt tónleika um það leyti en annað liggur ekki fyrir um hann.