
Stórsveit Austurlands
Stórsveit Austurlands var sett á laggirnar til að leika á Djasshátíð Austurlands sumarið 1997, sem þá var haldin í tíunda skipti á Héraði undir stjórn Árna Ísleifs en hann mun hafa hvatt til að sveitin yrði stofnuð.
Reyndar varð stórsveitin ekki langlíf, hún lék á hátíðinni og svo líklega einu sinni til viðbótar um sumarið en þar með var þar upptalið. Stjórnandi sveitarinnar var Einar Bragi Bragason skólastjóri Tónlistarskólans á Seyðisfirði en uppistaðan úr sveitinni mun hafa komið þaðan auk þess sem nokkrir tónlistarkennarar og aðrir hljóðfæraleikarar skipuðu hópinn.














































