Hljómsveitin Stress mun hafa verið einhvers konar pönksveit sem starfaði í Hafnarfirði og skartaði m.a. meðlimum sem síðar urðu þekkt nöfn í tónlistinni og víðar.
Meðlimir Stress voru þeir Stefán Hjörleifsson gítarleikari, Haraldur Baldvinsson söngvari, Hallur Helgason trommuleikari og Atli Geir Grétarsson bassaleikari.
Sveitin starfaði að minnsta kosti á árunum 1981 og 82, og kom töluvert fram á tónleikum.