Afkvæmi hugsana minna

Afkvæmi hugsana minna
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Afkvæmi hugsana minna hlusta ekki lengur á mig,
halda fyrir mér vöku og vilja láta annast sig,
í höfði mínu liggja göng inn í gula salinn víða,
gönguferð á múrum hugans er svo lengi að líða
svo ég ligg bara hérna svefnvana og syng í hljóði lag
og syndi gegnum næturmyrkrið inn í nýjan dag.

Skuggar daganna minna í myrkrinu tala um þig
og minnast á brotin loforð sem sviku fleiri en mig,
í hjarta mínu liggja göng grafin út af leiða
fyrir göngumóðar hugsanir sem í nóttinni veiða
minningar sem synda um í sjónum dökka rauða
og svefnvana ég ráfa um húsið stóra auða.

Á akri vitundar minnar sáðmaðurinn sefur rótt,
ég hef séð hann koma og fara nótt eftir nótt,
nætursvefninn farinn, er með friðinn mjúka hvíta
og ég finn í brjósti vökuna hjartað sundur slíta
svo ég ligg bara hér svefnvana og syng í hljóði lag
og syndir gegnum næturmyrkrið inn í nýjan dag.

[af plötunni Bubbi Morthens – Lífið er ljúft]