Horft til baka
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Þessi augu minna á herskip hjartans
sem hljóðlaus sigla vokandi dimmrautt hafið,
tundurskeytaorðin finna í myrkrinu markið
og móðurskip heilans liggur í djúpinu grafið.
Ég stari á þig í gegnum glasið og vökvann
meðan grimmd þín flæðir bakvið lokaðar dyrnar.
Dreg að mér andann og eigna mér glæran botninn
út úr angóruvörum þínum standa þyrnar.
Í myrkvuðu rúminu lifa minnislausir snákar
og mjúkir kaktusar heitum örmum þig vefja,
þú séð að koddinn er fylltur með fögrum orðum
sem fanga þig nakta og þreyttan hug þinn sefja.
Í þínu ljósa hári hláturinn sefur draumlaus
en hatrið nývaknað lærir strax hver á leikinn.
Það er heitt hérna inni og allar dyr eru læstar,
eitthvað er að brenna en ég sé bara ekki reykinn.
Á bankabók ástarinnar eru aðeins kossar kaldi
og við klífum ísinn í von um að finna þar hita
en finnum aðeins lögmenn klædda kuldaúlpum
sem kafa oní hjörtun og fá sér þar bita.
Ástin á fleiri andlit en tekur að telja,
trúðurinn fleiri tár en harmur okkar beggja
ef sál mín hefði vængi væri‘ hún flogin fyrir löngu
frjáls undan oki þessarar gulu veggja.
[af plötunni Bubbi Morthens – Lífið er ljúft]