Þeir hafa trúðinn en þá vantar trúbador

Þeir hafa trúðinn en þá vantar trúbador
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Ég er staddur á stað þar sem línan liggur
og lífið hjá fólkinu er svart og hvítt,
þar er listamaðurinn glaður, þægur og þiggur
í þriðja sinn styrkinn til að gera eitthvað nýtt.
Á fjögra ára fresti þeir ganga í gömul spor,
gjaldið til baka er heldur ekkert slor.
Þeir hafa trúðinn en þá vantar trúbador.

Ég er staddur á stað þar sem línan liggur,
mér leiðist fólkið sem stjórnar þar,
ef þú hefur þrælslund, ert duglegur og dyggur
og draumar þínir stangast ekki á við reglurnar
þá skaltu ganga múlbundinn og mála þeirra spor
og merkja þig fuglinum fyrir næsta vor.
Þeir hafa trúðinn en þá vantar trúbador.

Ungur ég heyrði að hugsjón væri dyggð
og hlustaði á flokkana tala um þessa tryggð
og þeir sem enga hugsjón hafa halda kannski að
hamingjan sé fólkin í að hreyfast ekki úr stað.

Ég er staddur á stað þar sem línan liggur
og loforðin vaxa á flokksins vör,
smælinginn hann tínir upp loforðin tryggur
og tekur á sig skítverkin en fær aldrei svör.
Þeir hringja og vilja kaupa kjarkinn þinn og þor,
kannski vantar flokkinn aðeins betra skor.
Þeir hafa trúðinn en þá vantar trúbador.

Ég er staddur á stað þar sem lygin liggur
sem lína dregin og skilur að
hægri og vinstri og ég horfi á hryggur
hvernig þeir leiða fólkið á sinn merkta stað.
Og ég geng frá línunni og legg mín eigin spor,
lækurinn sem rann svo tær er orðinn drullufor.
Þeir hafa trúðinn en þá vantar trúbador.

[af plötunni Bubbi Morthens – Lífið er ljúft]