Brunnurinn okkar
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Frystihúsin leggja upp laupa,
lánin streyma að,
bátar kroppa í kvótann
og kasta á sama stað.
SÍS það bindur bændurna
sem borga skuldirnar,
það er dýrlegt að drottna
og dæma af þeim jarðirnar.
Fólkið inni á fjörðum þrjóskast,
fjöllin sín elskar það,
bændur berjast áfram,
bjóða kreppunni heim í hlað,
menn þræla fyrir lúsarlaun
langan vinnudag.
Handa þessu fólki flyt ég
og fjörðurinn þetta lag.
Það er gott að búa í gullborg
en gleymum samt ekki því
að þorpin byggðu brunninn
þann sem borgin sækir í.
Án bátanna væri baráttan
um brauðið löngu dauð.
Ef öngvir yrktu jörðina
yrðu heimilin snauð.
[af plötunni Bubbi Morthens – Von]