Guð er kona
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Lítil stelpa sagði við mig sjáðu skýin þarna,
sjá þetta þykka hvíta þar er hópur barna.
Þegar ég verð gömul og geng bogin svona
mun guð á himnum taka mig og guð hún er kona.
Gamall maður sagði við mig sumarið er búið,
hjarta mitt er ansi þreytt, orðið frekar lúið.
Að ég deyi í svefni vinur, það ég vona.
Og vakni upp og sjái að guð minn er kona.
Ástfangna konan sagði sjáðu hann er fagur,
ég sef við brjóst hans uns að nýju rís dagur
og ég óska mér að dagar okkar verði alltaf svona
og eitt máttu vita ég veit að guð er kona.
[af plötunni Bubbi Morthens – Sól að morgni]