Við Gróttu
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Í rauðbláu húmi sólin sest niður
yfir sjónum er miðnæturfriður
þar er vitinn sem vakir allar nætur,
varlega aldan snerti okkar fætur.
Sporin í sandinum hverfa eins og árin
eins hefur gróið yfir gömlu sárin.
Og jörðin hún snýst um sólina
alveg eins og ég.
Og jörðin hún snýst um sólina
alveg eins og ég.
Dimmblá skýin skreyta sjónarhringinn,
þú skoðar sem barnið þarabinginn
og hlátur þinn fyllir mig fögnuði þess
sem finnur á lífið hefur valið honum sess,
við hlið hennar allt þar til lífinu lýkur.
Lifa með henni, það er að vera ríkur.
Og jörðin hún snýst um sólina
alveg eins og ég.
Og jörðin hún snýst um sólina
alveg eins og ég.
Svo loka ég augunum örlitla stund,
augnablikið á sinn hljóðláta fund
og hjartað hvíslar, ástin er göldrótt.
Og hafið verður eitt augnablik hljótt.
Ást okkar er orðin stór og sterk.
Ég elska þig mitt fallega furðuverk.
Og jörðin hún snýst um sólina
alveg eins og ég.
Og jörðin hún snýst um sólina
alveg eins og ég.
[af plötunni Bubbi Morthens – Sól að morgni]