Ef þú brosir öllum við
(Lag / texti: erlent lag / Davíð Þór Jónsson)
Við getum gert hvað sem við viljum líf okkar við,
við getum enn breytt um stíl
og glaður skal ég nú skoða það mál.
Skoði líka hver sína eigin sál.
Við getum gert hvað sem við viljum líf okkar við,
við tökum ákvörðun sjálf.
Væri ekki gaman ef við stæðum saman?
Vinalaus er manneskjan aðeins hálf.
Við getum gert hvað sem við viljum líf okkar við
og valið allt aðra slóð.
Kæmi til greina að láta á það reyna
hvort það væri betra að vera góð þjóð?
Gefur gull í mund
góður vinur, eins og fögur blóm skreyta grund.
Góð!
Haltu í hendi mér.
Hjálpaðu og statttu með mér hvernig sem fer.
Sjáðu nú að þér og segðu um hæl:
„Sannur vinur kallar fram á þér smæl.“
Ef þú brosir öllum við brosir veröldin við þér
og brosið verður það sem þú skildir eftir hér.
[af plötunni Bugsy Malone – úr leikriti]