Ég dansa tangó

Ég dansa tangó
(Lag & texti: Bubbi Morthens)

Í tangóinum á tunglið heima
tíminn nemur staðar hjá þér
Bergmál hárra hæla mig teyma
haltu mér fast eða slepptu mér
ég dansa tangó tangó fyrir þig

Kysstu mig varlega myrkur
mínar varir eru aðeins gler
úr faðmi þínum flæðir sá styrkur
sem fær mig til að hvíla inní þér
ég dansa tangó tangó fyrir þig.

Vindurinn hló í hári þínu
hvíslandi í myrkrið orðin sín
loforðin héldu á hjarta mínu
hamingjan biðlaði til mín

Í draumum mínum dagarnir fæðast
dagar sem krýndir voru mér
meðan veruleikinn vofur (að mér) læðast
ég dansa tangó tangó fyrir þig.

[af plötunni Bubbi og Megas – Bláir draumar]