Ég hata þetta bít
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Halló,
halló.
Viltu dansa?
Gerðu það,
dansaðu við mig,
þetta er skemmtilegt lag,
dansaðu,
gerðu það.
Ég hata diskó, þoli ekki þetta bít
og ég er stífur, þú ert laus,
við dönsum diskó á sömu braut.
Ég hata diskó, hef slappan skrokk í það,
samt hef ég rytma, hvítan rytma.
Þú hefur rytma, slefandi rænulaus,
þú hefur rytma, slefandi rænulaus.
Eins og snákur
læðist ég
að bakhluta þínum.
Fötin eru frá Sautján.
Ég hata diskó, þú elskar það,
ég hata diskó, því vantar lag,
spegil, spegil, þær taka eftir mér,
spegil, spegil, þær horfa á fæturna á mér.
Ég véla þær, ég véla þær.
Ég hata diskó, ríð í takt við Lou Reed,
ég hata diskó, þoli ekki þetta bít,
þær trúa mér ekki,
en ég á smá ljósashow á kinninni á mér,
ég hata þetta bít.
Humphrey Bogart á mánudögum
Silvester Stallone á laugardögum
Clark Gable á miðvikudögum
og jafnvel smá Travolta á fimmtudögum.
Óaðfinnanlegt kyntröll á föstudögum.
Ég hata diskó, þoli ekki þetta bít,
ég hata diskó, ríð í takt við Lou Reed,
þú hefur rytma slefandi, rænulaus,
þú hefur rytma slefandi, rænulaus.
Dansaðu, dansaðu, dansaðu.
Ahhhhh þoli ekki þetta bít,
ég hata ahhhhh
ég hata diskó, diskó, diskó,
þoli ekki þetta bít,
hata diskó, ég ríð í takt við Lou Reed.
[af plötunni Bubbi Morthens – Ný spor]