Eitt til fimmtán glös

Eitt til fimmtán glös
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Eitt glas tvö glös þrjú glös búmm
góði finndu leiðina sjálfur upp í rúm
fjögur glös fimm glös sex glös súmm
finnur svimann koma kallinn dúm dúm dúm

Þúsund litlar sleggjur slá kljúfa þinn haus
leitaðu að flöskum tappinn er jú laus
sjö glös átta glös níu glös takk
gömlu traustu vinirnir eru skíta pakk

Þú ert snillingur í kjaftinum kannski er það list
kennir öllum öðrum um bömmerinn fyrst
tíu glös ellefu glös tólf glös mát
þú getur alltaf falið þig bakvið blakkát.

Lærðu flöskurnar að fela af stöðum er jú nóg
þú finnir inni á klósetti langþráða ró
þrettán glös, fjórtán glös, fimmtán glös tár
með góðum vilja áttu eftir tvö til þrjú ár.

[af plötunni Bubbi og Megas – Bláir draumar]