Litlir sætir strákar
(Lag og texti: Megas)
Ég dirfist ekki um stelpur meir
við stelpurnar að þrátta
þær eru töfrandi á aldrinum
frá tólf og niðrí átta
en ef þú ert að pæla í
hvað það er sem koma skal
litlir sætir strákar
eru langtum betra val.
Þú mændir sem einn afglapi
á ókleifan múr
nú veistu af beiskri reynslu
að vínberin eru súr
og þú saknar einhvers
sem þú getur kelað við og kysst
og litlir sætir strákar
vekja stöðugt góða lyst.
Þú ert kalinn bæði og sviðinn
nú en áttirðu von á öðru
það finnur enginn gæfuna
í faðmlagi við nöðru
en þegar lífsins fár
þau vilja færa þig í kaf
litlir sætir strákar
þeir stinga þig ekki af.
Sortnaðir geislar
sólar sem djúpt er hnigin
myrkva lífið þitt
og löngu fallin vígin
og einsemdin hún er svo dimm
og átakanlega köld
litlir sætir strákar verma
og lýsa upp þín kvöld.
Ég heyrði það í draumi
og ég heyrði það svo skýrt
dömueðlið
er að dyggðum rýrt
ég heyrði það í draumi
þú skalt heiðra eigið kyn
og lítinn sætan strák
er ljúft að eiga fyrir vin.
En bjálfarnir þeir munu ætíð
binda trúss við frúrnar
og þegar eldar brenna hjörtun
í augunum þeim súrnar
en spáirðu bara í dæmi
gömlu spekinganna sést
að litlir sætir strákar
hafa löngum reynst best.
[af plötunni Bubbi og Megas – Bláir draumar]