En frábær hugmynd

En frábær hugmynd
(Lag / texti: Þorvldur Bjarni Þorvaldsson / Kristlaug María Sigurðardóttir)

En frábær hugmynd.
Hún er mín, hún er mín,
hún er mín, mín, mín.
En frábær hugmynd,
hún er fín, hún er fín, hún er mín.

Ég ætla nú að segja frá því ef að ég má
án þess að hugsa neitt um minn eigin hag.
Ástandið í körfunni var af og frá.
Því kippti ég svo snarlega í lag.

Svona þér að segja var
það alveg örugglega ég.

Æi góða þú veist ekki baun.

Svona þér að segja var það örugglega ég
sem fann upp vináttu og ást.

En frábær hugmynd.
Hún er min, hún er mín,
hún er mín, mín, mín.
En frábær hugmynd.
Hún er fín, hún er fín, hún er mín.

Ég man það svo vel eins og gerst hafi í gær.

Öðru nær, þú treður öllum um tær.

Ég ætla að boða frið um alla körfuna
bæði nær og fjær.

En frábær hugmynd.
Hún er mín, hún er mín,
hún er mín, mín, mín.
En frábær hugmynd.
Hún er fín, hún er fín, hún er mín.

Hún er mín.
Hún er mín.
Hún er mín.
Hún er mín.

[af plötunni Ávaxtakarfan – úr leikriti]