Fagur er fiskur í sjó (vögguvísa)

Fagur er fiskur í sjó (vögguvísa)
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Nú blæs hann að norðan,
nóttin er dimm og köld,
skuggar skelfa börnin
með sín svörtu svörtu tjöld,
já úti er myrkur og mugga,
mamma þarf að hugga
lítinn labbakút,
óttanum burtu stugga,
hið illa reka út,
bíum bíum bambaró,
pabbi er úti á sjó,
pabbi er að sækja gull,
pabbi er að sækja sægreifans gull,
lúlíló og dillidó,
bíum bíum bambaró.

Mamma hvíslar í húminu,
pabbi er úti á sjó,
hjartað þitt er hjartað hans,
þei þei og ró ró,
kvótaskrímslið skelfir hann,
skilja muntu sannleikann
þegar þú verður stór,
milljarðar sægreifans
suður í bankann fór,
bíum bíum bamba ró,
fagur er fiskur í sjó,
sofðu litli ljúfurinn,
mömmu ljúfi strákurinn.

[af plötunni Bubbi Morthens – 1000 kossa nótt]