Jóhannes 8

Jóhannes 8
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Inní réttarsalnum sat hann
hokinn með höfuð grátt,
í frjálsu falli sveif hann
og fall hans var hátt.

Dómarinn hneykslaður
kvað upp köldum rómi.
Víti til varnaðar
við fellum þennan dóm.

Sá yðar sem syndlaus er
kasti fyrsta steininum.

Hjálp hrópaði maðurinn
með hendur járnum í.
Ég er saklaus, ég segi það,
mitt böl er þungt sem blý.

Fólkið það fagnaði.
Fréttin barst um borg.
Einhvers staðar er heimili
og hjörtu full af sorg.

[af plötunni Bubbi Morthens – 1000 kossa nótt]