Fyrir löngu síðan
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Menn nýttu sér pólitísk sambönd sín
og sviku – það gerðu þeir.
Það tíðkaðist á tímum kalda stríðsins
og síðan ekki söguna meir.
Þetta gerðist fyrir löngu síðan
en það gerist ekki í dag
því þá var það þjóðinni í hag.
Einu sinni var maður svo múraður
meðan annar átti ekki mat.
Einn flokkur hagnaðist á hernum
í hásæti sínu hann sat.
Þetta gerðist fyrir löngu síðan
en að gerist ekki í dag
því þá var það þjóðinni í hag.
Menn fengu gefins fiskinn í sjónum
frá ráðherrum þessa lands.
Og græðgin sig gróf að rótum hjartans
og gerði þar langan stans.
Þetta gerðist fyrir löngu síðan
en það gerist ekki í dag
því þá var það þjóðinni í hag.
Menn stofnuðu flokk og fylktu liði.
Fram þjáðir sungu þeir
meðan foringinn slátraði milljónum manna
og moldin rauða veit meir.
Þetta gerðist fyrir löngu síðan
en það gerist eki í dag
því þá var það þjóðinni í hag.
Hálendið lögðu men undir vatn
og lugu sig undir grjót.
Fossana tömdu í túrbínudans
yfir mosann flæddi fljót.
Þetta gerðist fyrir löngu síðan
en það gerist ekki í dag
því þá var það þjóðinni í hag.
Ráðamönnum þeim lærðist það létt
að lögin væru stálið.
Til þess að temja sauðsvartan almúgann
og fleygja sumum á bálið.
Þetta gerðist fyrir löngu síðan
en það gerist ekki í dag
því þá var það þjóðinni í hag.
Ef hlutirnir ennþá eru svona
þá eflaust er það svarið
af lögfróðum varið.
Ef það gerist ekki í dag
þá gerist það á morgun
því þá er það þjóðinni í hag.
[af plötunni Bubbi Morthens – Sól að morgni]