Grænmetisvísur

Grænmetisvísur
(Lag / texti: erlent lag / Kristján frá Djúpalæk)

Þeir sem bara borða kjöt
og bjúgu alla dag
þeir feitir verða og flón af því
og fá svo illt í maga.
En gott er að borða gulrótina,
grófa brauðið, steinseljuna,
krækiber og kartöflur
og kálblöð og hrámeti.
Þá fá allir mettan maga,
menn þá verða alla daga
eins og lömbin ung í haga l
aus við slen og leti.

Sá er fá vill fisk og kjöt
hann frændur sína étur
og maginn sýkist, molnar tönn
og melt hann ekki getur.
En gott er að borða gulrótina,
grófa brauðið, steinseljuna,
krækiber og kartöflur
og kálblöð og tómata.
Hann verður sæll og viðmótsgljúfur
og vinamargur, heilladrjúgur
og fær heilar hvítar tennur.
Heilsu má ei glata.

[af plötunni Dýrin í Hálsaskógi – úr leikriti]