Hann elskar mig ekki

Hann elskar mig ekki
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Maðurinn í húsinu hvíslar rökkurorðum
sem hlustirnar fylla þykkum ótta,
undir sænginni er myrkrið hlýtt og gott,
draumarnir sáust seinast á flótta.

Hann elskar mig ekki,
hann elskar mig ekki nei,
hann elskar mig ekki,
hann elskar mig ekki, ég dey,
hann elskar mig ekki,
hann elskar mig ekki, sveit.

Stúlkan í húsinu föl yrðir á engan,
æskan burtu frá henni tekin,
hann brosir svo blítt rauður í framan,
bráðum gleypir hann drekinn.

Fólkið í húsinu hlustar ekki á barnið,
hamingjan á þar engar rætur,
allt það ljúfa, allt það fagra drepið,
lítil dama við gluggann grætur.

[af plötunni Bubbi Morthens – Allar áttir]