Hverjum geturðu treyst

Hverjum geturðu treyst
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Efinn kemur þögull sem þjófur um miðja nótt
og þrengir sér inn í sálina inn að kviku.
Þeir sem voru trúaðir hörfuðu hljótt
meðan helgir menn söfnuð sinn sviku
og allt sem þú lærðir og allt sem þú veist
er einskis virði ef hjartanu blæðir,
hverjum geturðu treyst, hverjum geturðu treyst
ef krossinn aðeins börnin sín hræðir.

Vantrúa fólkið hefur það loksins lært,
lausnir klerkanna duga ei lengur,
þín barnatrú og allt sem þér var kært
er eins og munaðarlaus drengur
og allt sem þú trúðir og allt sem þú veist
er aðeins klisjur og eitthvað verra,
hverjum geturðu treyst, hverjum geturðu treyst
ef þjónninn hefur svikið þinn herra.

Er blinda kirkjunnar að sigla henni í strand,
öll sund lokast, það er svarta bylur,
þó að stýrimaðurinn bendi, bræður ég sé land,
er það boðskapur sem skipstjórinn ekki skilur
og allt sem þú lærðir og allt sem þú veist
er einskis virði er kvölda tekur,
hverjum geturður treyst, hverjum geturðu treyst
ef hirðirinn lömbin burtu hrekur.

[af plötunni Bubbi Morthens – Allar áttir]