Hvað þá

Hvað þá
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Það ertu til tvær liðir, flótti eða ekki,
þú ferð ekki í samband með fortíðar hlekki,
það er dæmt til að farast því spennan hún deyr,
þið vaknið einn daginn og það er ekkert meir
nema fortíðardraugar ykkar beggja
sem mæta óboðnir og á borðið leggja
ótta og sorg og afneitun hráa
í aðalrétt þið fárið veruleikann gráa.

Og hvað þá, hvað þá, hvað þá,
hvað þá, hvað þá, hvað þá,
nýr flótti bak við fjöllin grá.

Þú trúir því núna að frelsið sé svona,
hvítvín, sofa hjá, ég er frjáls kona,
má vera en líkurnar eru meiri en minni
að þú vaknar upp einn daginn með logandi sinni,
þú flýrð ekki svo létt liðnu árin,
þannig gróa aldrei hjarta sárin,
koddahjal er fín svo langt sem það nær
en þannig verður aldrei sálin tær.

Hvað þá, hvað þá, hvað þá,
hvað þá, hvað þá, hvað þá,
nýr flótti bak við fjöllin grá.

Það er spennandi að eiga í felum fund,
æsandi að upplifa þá heitu stund
en eins og dropinn sem stanslaust holar steininn
munu óuppgerðar tilfinningar fóðra hjartameinin

Og hvað þá, hvað þá, hvað þá,
hvað þá, hvað þá, hvað þá,
nýr flótti bak við fjöllin grá.

[af plötunni Bubbi Morthens – Ást]