Hvers vegna varstu‘ ekki kyrr?
(Lag og texti: Jóhann G. Jóhannsson)
Ég hef engu gleymt þó að ég tali ekki um það
og láti sem ekkert sé.
Það er víst best gleymt sem tengt er sorg eða trega
þögnin er mitt eina vé.
Draumar og þrár sem eiga aldrei að rætast
taka þér aðeins blóð
draga að þér dár uns þér finnst erfitt að látast
og svefninn þér neitar um skjól.
Samt leitar hugur minn heim til þín
uns heitur sársaukinn við mér gín
svo hvar er sakleysið, ég spyr
því varstu‘ ekki kyrr?
Ég spyr því varstu‘ ekki kyrr
Hvers vegna varstu‘ ekki kyrr…
[af plötunni Pálmi Gunnarsson – Hvers vegna varstu‘ ekki kyrr]