Hver svífið þér, svanir?

Hvert svífið þér, svanir?
(Lag / texti: IngibjörgSigurðardóttir / Steingrímur Thorsteinsson)

Hvert svífið þér, svanir, af ströndu
með söngvum í bláheiðan geim?
Ég sé það af öllu, þér ætlið
í ósýnis fjarlægan heim.

Vér erum þíns sakleysis svanir,
vor samvistartími nú dvín.
Vér förum með klökkvandi kvaki
og komum ei framar til þín.

Með augunum yðar ég fylgdi,
og alltaf bárust þér fjær
í bláinn með blikandi vængjum
og burt dóu sönghljóðin skær.

En síðan við hlust minnar sálar
af söng yðar blítt hefu eimt.
Sem heyrði‘ ég úr heimneskri fjarlægð,
vér höfum ei alveg þér gleymt.

Þér kvödduð og komið ei framar
með kliðinn sem lengst hef ég þreyð.
En, svanir, kemst ég þá til yðar,
ef ómurinn vísar mér leið?

[af plötunni Heyrði ég í hamrinum – ýmsir]