Lögmálið verður að uppfylla
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Við vorum þrettán við borðið, bræðurnir og hann
í brjósti mínu hjartað fullt af kvíða,
á þeirri stundu var ég ákveðinn að hætta við
þegar hann spurði mig eftir hverju ertu að bíða.
Ekki tefja, þú veist, tíminn þinn líður,
lögmálið verður að uppfylla,
þá skildi ég allt, mér var ætlað að svíkja‘ hann,
þeir sögðu hann lýðnum vera að spilla.
Svo ég stóð upp og augu hinna fylgdu mér til dyra,
úti í myrkrinu kom efinn sem mara,
ég heyrði í þeim hrópin er ég gekk í burt
og ég fór þangað sem ég átti að fara.
Eftir að mér var borgað talaði faðir hans til mín,
trú þín er mikil og hreint þitt hjarta,
þú gerðir það sem þér bar að gera,
því munt þú í kvöld líta ljósið hans bjarta.
Mitt hlutverk var ákveðið alveg frá byrjun tímans,
allt var skrifað, jafnvel sjálfur kossinn,
hann vissi það sjálfur frá því hann sá mig fyrst,
það yrði ég sem seldi‘ hann á krossinn.
[af plötunni Bubbi Morthens – Tvíburinn]