Móðirin

Móðirin
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Sem lítill drengur ljós mitt og yndi
öðruvísi alltaf varst þú, f
ólkið í þorpinu forviða spurði
hvaðan kemur þessi viska og trú?
Það hrópaði og spáði og kvartaði sárt,
hann boðar ógæfu, það er alveg klárt.

Faðmur mnn var ennþá þitt skjól,
Fulltíða maður ljós mitt og yndi,
óbugaður alltaf varst þú,
fólkið það sagði sögur af þér,
sonur Jósefs hann boðar nú trú,
ég man þegar Jakob bróður þínum blæddi,
þú brostir lítill hnokki og sárið hans græddir.

Faðmur minn var ennþá þitt skjól.
Ég stend og stari á andlitið beinhvítt,
þeir standa og hæða þig, hvar er nú guð þinn.
Hjartanu blæðir, sjáið þetta er sonur minn,
sjáið þetta er sonur minn.

Ég man þig hrópandi, mamma ég get það,
þótt hamarinn væri of þungur,
sex ára gamall vildir verða smiður
og þú sagði ég er ekki og ungur,
ég tók þig í fangið og kyssti þína kinn
og þú sagðir ég verð alltaf strákurinn þinn
og nú ert þú mitt trausta skjól.

[af plötunni Bubbi Morthens – Tvíburinn]