Þetta mælti hann
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Þeir sögðu við hann rektu hana burt,
við viljum hana ekki,
hvers vegna fær hún að fylgja þér,
svarið var ég hjarta hennar þekki.
Við sátum við eldinn, til okkar mælti‘ hann
og mildin í augum hans brann,
sá sem drekkur af vörum mínum verður ég
og ég mun sannarlega verða hann.
Hann sagði ég hef varpað eldir á heimsbyggðina,
við að ég vaki uns bálið brennir hallir og gerði
þá við óttumst ekki glampann af rómversku sverði.
Ef til vill telur fólk mið friðardúfu
svo fjarri sannleika er það,
það veit ekki ég boða sundrung og stríð
ég færi heimsveldi úr stað.
Þeir dagar munu koma þá þið leitið mín
en mig verður hvergi að finna,
ég er ljósið sem skín yfir heiminn,
sendur á meðal barna sinna.
Sá sem þekkir veröldina hefur fundið hræ eitt,
sá sem fundið hefur hræið hefur lagt veröldina að fótum sér,
þetta mælti hann til okkkar og ég, María, segi þér.
[af plötunni Bubbi Morthens – Tvíburinn]