Maðurinn er einn
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Maðurinn trúinn hann sé herra móður jarðar
Jörðin er nám sem þarf að skila auð
Maðurinn hann sveltir börn sinna bræðra
sem dreymir ekki gullið, aðeins brauð.
Maðurinn trúir hann sé tæknilega greindur
telur sig inni og veit hvað er svalt.
Maðurinn er tengdur og trúir blind á netið,
tilfinningalíf hans er flatt og kalt.
Maðurinn er einn
Maðurinn er einn
Og veröldin verður minni og minni.
Maðurinn hann telur ástina tímasóun,
trúir á kynlífið nakið og hrátt.
Maðurin leikur guð og grýtir eigið hjarta,
glímir við sjálfan sig, finnur enga sátt.
Maðurinn hann trúir á frægðina og frama,
friðlaus í neyslunni týnir sjálfum sér
Maðurinn gekk frá guði götuna breiða
Guð minn ég bið þig ekki að gleyma mér.
Maðurinn er einn
Maðurinn er einn
Og veröldin verður minni og minni.
[af plötunni Bubbi Morthens – Tvíburinn]