Minning [2]
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Ég horfði inn í sjálfan mig og fann falinn þar
fölan strák með lítið hjarta og á vörum þetta svar.
Ég á nóg, ég á nóg, ég á nóg,
ég á nóg af göllum.
Ég man eftir skólanum skriftblindur – lamaður
af skelfingu ég beið eftir að verða úthrópaður.
Ég á nóg, ég á nóg, ég á nóg,
ég á nóg af göllum,
Ég flakkaði þorp úr þorpi og stálaði minn hníf,
þjakaður- mig dreymdi um miklu betra líf.
Dag einn fann ég útgöngu og lagði strax af stað.
Efinn gat ekki stoppað mig, ég hafði alltaf vitað það.
Ég á nóg, ég á nóg, ég á nóg,
ég á nóg af kostum.
[af plötunni Bubbi Morthens – 1000 kossa nótt]