Njóttu þess
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Hefur þú séð fætur sonar þíns nýlega,
sástu marblettina á vinstri fæti,
um helgina sló sá hægri í gegn.
Hvílíkt mark, hvílík fagnaðarlæti.
Litlir strákar hrópa af hjartans list.
Ég vona þín vegna þú hafir ekki af leiknum misst.
Hefur þú heyrt dúkku dóttur þinnar tala.
Dúkkan á börn og erfiðan pabba,
þarf að kaupa föt og fara í heimsókn,
finna sig til og með kerru út að labba
og dúkkan notar þína fínu frasa.
Ég vona þín vegna þú hafir tíma til að masa.
Í hverri viku eru börn að vinna sigur.
Veröldin er ennþá bara ljúf og góð.
Og bros þeirra er gjöf guðs til þín.
Njóttu sólarinnar meðan sólin skín,
því fyrr en varir verða húsin ykkar hljóð.
[af plötunni Bubbi Morthens – 1000 kossa nótt]