Nafnið þitt

Nafnið þitt
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Ég stend og horfi á þig,
hjarta mitt slær svo,
ég veit þú þekkir mig,
þrái þig dag og nótt.

Keyri götuna þína,
sé þig út í glugga,
dreymir þig í kjólnum fína,
hættuleg kona með langa skugga.

Og ég hrópa hrópa upp nafnið þitt
og ég hrópa hrópa upp nafnið þitt
og ég hrópa hrópa upp nafnið þitt,
get ekki hætt að elska þig.

Ég sé þig hvert sem ég fer,
finn fyrir þér inn í mér,
ég stoppa bílinn og tala við guð,
síðan ég hrópa upp nafnið þitt.

Já ég hrópa hrópa upp nafnið þitt
og ég hrópa hrópa upp nafnið þitt
og ég hrópa hrópa upp nafnið þitt,
get ekki hætt að elska þig.

[af plötunni Bubbi Morthens – Ást]