Sjómaður upp á hár

Sjómaður upp á hár
(Lag og texti: Ólafur Haukur Símonarson)

Það var einn prúður sjómaður með salt í æðunum,
hann sveiflaðist í kaðli í siglutrjánum.
Eitt var það sem enginn vissi um þennan mæta mann,
hann kunni að hnýta rembihnút með tánum.

Sjómaður, já sjómaður,
já sjómaður upp á hár.
Sjómaður, já sjómaður,
stundum rauður en aldrei blár,
fremur stuttur með liðað hár.

Hann sigldi yfir höfin blá með sælubros á vör
og brá sér ei við neitt, það menn vita
nema vera skyldi þegar skipshundurinn Þór
var næstum drukknaður í eigin svita.

Sjómaður, já sjómaður,
já sjómaður upp á hár.
Sjómaður, já sjómaður,
stundum rauður en aldrei blár,
fremur stuttur með liðað hár.

Aldrei sást hann loka báðum augunum í senn
og aldrei tók hann ofan höfuðfatið
og þegar sjórinn fossaði í fíladallinn inn
þá stakk hann bara fingrinum í gatið.

Sjómaður, já sjómaður,
já sjómaður upp á hár.
Sjómaður, já sjómaður,
stundum rauður en aldrei blár,
fremur stuttur með liðað hár.

[af plötunni Olga Guðrún Árnadóttir – Eniga meniga]