Söknuður [2]

Söknuður [2]
(Lag / texti: Jóhann Helgason / Vilhjálmur Vilhjálmsson)

Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
og heldur ósjálfbjarga því er ver.
Ef værir þú hjá mér, vildi‘ ég glaður
verða betri en ég er.

Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að segja
að sumarið kemur allt of fljótt.

Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur hjá blómunum.
Er rökkvar, ráðið stjörnumál.
Gengið saman hönd í hönd,
hæglát farið niður‘ á strönd.
Fundið stað, sameinað beggja sál.

Horfð er nú sumarið og sólin,
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin,
nú einn ég sit um vetrarkvöld.

Eitt sinn verða…

Ég gái út um gluggann minn
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar,
ég reyndar sé þig alls staðar.
Þá napurt er, það næðir hér
og nístir mig.

[m.a. á plötunni Vilhjálmur Vilhjálmsson – Hana-nú]