Strengir

Strengir
(Lag / texti: Heiðdís Norðfjörð / Kristján frá Djúpalæk)

Steinarnir eru strengir,
strengina vatnið knýr.
Gaman það væri að vita
hvað í vatninu huga býr.
Hvaðan skyldi það koma?
Hvert er heitið þess ferð?
Síðar á öldum söngsins
samferða því ég verð.

Lyngið á líka streni,
leikur blærinn á þá,
söngva sorgar og gleði
er í sálum kveikja þrá.
Vorljóðin draums og vona
veröldin syngur öll.
Berast vil ég með blævi
burt yfir hæstu fjöll.

[af plötunni Pílu Pínu platan – úr leikriti]