Þá verður gaman að lifa

Þá verður gaman að lifa
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Í þorpi úti á landi er lífið svona.
Þar leyfa menn sér að draum og vona
að verksmiðja rísi og reisi við bæinn
með rífandi vinnu allan guðslangan daginn
og þá verður gaman að lifa.

Í þorpi úti á landi lærir ungur maður
að litla þorpið sé hans staður.
Ég hef ekkert fyrir sunnan að sækja,
það er sjálfgefið, alls engin flækja,
mér þykir hér gott að lifa.

Í þorpi úti á landi litlu börnin spyrja
ljóshærð saklaus hvenær skal byrja
að smíða álver úti við fjörðinn,
stóreyg gapa: er það stærra en jörðin?
Og þá verður gaman að lifa.

Í þorpi úti á landi sjóða menn slátur.
Á sjónum hímir kvótalaus bátur.
Þar mávurinn grætur og goggar í stálið
með galtóman maga hann spáir í málið.
Er nokkuð hér gaman að lifa?

Í þorpi úti á landi flýr fólkið suður.
Það fást víst í borginni heitar kruður.
Þar er betra að dorma í einangrun inni
með átján rása sjónvarpsminni.
Í borginni er betra að lifa.

Í þorpi úti á landi er lífið svona.
Þar leyfa menn sér að dreyma og vona
því ráðherraflokkur flyur þeim sönginn.
Í fjallið við borum þá hafið þið göngin
og þá verður gott að lifa
og þá verður gaman að lifa.

[af plötunni Bubbi Morthens – Sól að morgni]