Þú

Þú
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Skrítið hvernig stjörnur himins lýsa,
löngu horfnu ljósi í augu þín,
sjáðu hvernig norðurljósin rísa,
bleik og græn þau tala til mín
og þú veist ástin fer alltaf sína leið.

Þú, aðeins þú,
þú aðeins þú,
ástin hvíslar ekki vera leið.

Skrítið hvernig hjartað leggur á þig,
lætur eins og ekkert hafi skeð,
bara til að minna einn daginn á sig,
núna veistu að þú ert bara peð
og þú veist ástin siglir alltaf sína leið.

Þú, aðeins þú…

Það eina sem hann þráði var ekki flókið,
var að fá að vera dag og nótt
við hliðina á þeirri einu réttu,
ástin hvíslar ekki vera leið.

Þú, aðeins þú…

[af plötunni Bubbi Morthens – Ást]