Undir bláhimni

Undir bláhimni
(Lag / texti: erlent lag / Magnús Kr. Gíslason)

Undir bláhimni blíðsumarsnætur
barstu’ í arma mér, rósfagra mey.
Meðan döggin á grasinu grætur
gárast  tjörnin í suðrænum þey.

Ég var snortinn af yndisleik þínum,
ástarþráin er vonunum felld.
Þú varst ljósblik á lífshimni mínum,
þú ert ljós mitt og stjarna í kveld.

Ég vil dansa við þig meðan dunar
þetta draumblíða lag sem ég ann.
Meðan fjörið í æðunum funar,
og af fögnuði hjarta mitt brann.

Og svo dönsum við dátt, þá er gaman,
meðan dagur í austrinu rís.
Og svo leiðumst við syngjandi saman,
út í sumarsins paradís.

[m.a. á plötunni Karlakórinn Heimir – Undir bláhimni]