Villt fræ

Villt fræ
(Lag / texti: Magnús Örn Thorlacius)

Í jörðu liggja fræ
sem komast aldrei nær.

Teygja sig og þrá
en skýin eru alltaf grá,
öðrum liggur á
svo ég skal bara bíða og sjá.

Mig dreymdi um
að rynni upp stund.

Ég óx úr jörð
og sá til sólar
og hún sá til mín,
svo ylur barst ræturnar í.

Krækja saman fótum
og skjóta niður rótum.

Ég vaknaði til lífs
þó vitin gæfu aðra sýn.
Dauðinn sækir þig
en þú ert sá sem sækir mig.

Mig dreymdi um
að rynni upp stund.

Ég óx úr jörð
og sá til sólar
og hún sá til mín,
svo ylur barst ræturnar í.

Kominn, ég er kominn.
Kominn, já ég er kominn.

Ég óx úr jörð
og ég leitaði
og leitaði og leitaði
en fann hvergi ljós.

[af plötunni Myrkvi – Villt fræ [ep]