Vor við flóann
(Lag / texti: erlent lag / Jón Sigurðsson)
Senn fer vorið á vængjum yfir flóann,
vaknar allt af vetrarblund, um völl og hlíð.
Blómin spretta úr jörð og litla lóan
ljóðar glatt og leikur dátt sín lögin blíð.
Um hin kyrru ljúfu kvöld
er hvíslað létt í skóg
hin ástarljúfu orð
er angar döggin á grein.
Senn fer vorið á vængjum yfir flóann,
vaknar allt af vetrarblund, um völl og hlíð.
[m.a. á plötunni Ragnar Bjarnason og KK sextettinn – Vor við flóann / Hvítir svanir [ep]]