Skuggar [1] (um 1960)

Hljómsveit með þessu nafni starfaði í Flensborgarskóla í Hafnarfirði upp úr 1960 og var skólahljómsveit þar. Guðmundur Guðmundsson var líklega í þessari sveit en ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um Skugga.

Skuggasveinar [1] (1963-64)

Skuggasveinar hinir fyrstu var hljómsveit í anda The Shadows, um var að ræða sveit sem lagði áherslu á gítarlaglínur en einnig sungu gestasöngvarar með henni eins og títt var um hljómsveitir þess tíma. Sveitin starfaði á árunum 1963-64 eða rétt áður en The Beatles komu á sjónarsviðið með látum og kollvörpuðu öllum hugmyndum manna um…

Skuggasveinar [2] (1990)

Árið 1990 var hljómsveit með þessu nafni sem spilaði á Skuggabarnum, e.t.v. var hún eins konar hússveit þar. Engar upplýsingar liggja fyrir um meðlimi þessarar sveitar.

Skuggasveinar [3] (2008)

Platan Minni karla frá árinu 2008 hafði að geyma lög úr fórum Tony Joe White, Bandaríkjamanns sem menn hafa í gegnum tíðina tengt fenjarokki. Textarnir á plötunni eru eftir Braga Valdimar Skúlason. Sveitin sem spilaði undir kallaði sig Skuggasveina en hún var skipuð þeim Guðmundi Kristni Jónssyni, Guðmundi Péturssyni, Kristni Snæ Agnarssyni, Mikael Svensson, Eyjólfi…

Skörungur [2] (2000-01)

Tríóið Skörungur keppti á Músíktilraunum árið 2000 og skilgreindi sig þar sem svartmálmssveit. Meðlimir sveitarinnar kölluðu sig Achenis Marlock forritara og Sephiroth Sarnaphrab gítarleikara en á sviði tilraunanna höfðu þeir sér til halds og traust kvenmann sem kallaði sig Svartgað og titluð var gjörningameistari Skörungur komst ekki áfram í úrslit keppninnar en sveitin starfaði eitthvað…

Smarty pants (2001-03)

Smarty pants var pönkrokksveit sem keppti í Músíktilraunum árið 2000 og komst þar í úrslit. Sveitin var frá Akureyri og spilaði eins konar pönkrokk. Meðlimir sveitarinnar voru Sigurður Jósefsson trommuleikari, Stefán Sigurðsson söngvari og gítarleikari (Necrophilia), Sölvi Antonsson gítarleikari og Þormóður Aðalbjörnsson bassaleikari (Exit, Tombstone). Sveitin var dugleg að spila í framhaldinu og átti efni…

Sogblettir (1984-91)

Hljómsveitin Sogblettir var áberandi um miðjan níunda áratuginn en sveitin var einn fulltrúa síðpönks á Íslandi ásamt Bleiku böstunum og fleiri sveitum. Þótt sveitin hafi ekki komið fram á sjónarsviðið fyrr en snemma vors 1987 hafði hún verið starfandi í nokkurn tíma (sumir segja jafnvel þrjú ár), þeir Arnar Sævarsson gítarleikari (hálfbróðir Bjarkar Guðmundsdóttur), Ari…

Sokkabandið [1] (1982-85)

Hljómsveitin Sokkabandið frá Ísafirði er með allra fyrstu kvennasveitum sem starfað hafa á Íslandi en hún mun hafa verið starfandi á árunum 1982-85, sumar heimildir segja hana stofnaða fyrr. Stofnmeðlimir Sokkabandsins voru þær Ásthildur Cesil Þórðardóttir bassaleikari, Eygló Jónsdóttir gítarleikari og Oddný Sigurvinsdóttir gítarleikari en þær höfðu frumkvæði að stofnun sveitarinnar, síðan bættust við þær…

Soul 7 (2007)

R&B bandið Soul 7 var stofnað sumarið 2007 af Katrínu Ýr Óskarsdóttur söngkonu og Jónasi Elí Bjarnasyni gítarleikara og söngvara en þau voru þá bæði í tónlistarnámi í Bretlandi. Aðrir sveitarmenn voru Davíð Jones bassaleikari, Helgi Hannesson hljómborðsleikari, Símon Geir Geirsson trommuleikari, Inga Þyri Þórðardóttir og Kjartan Arnald Hlöðversson en þau tvö síðast nefndu sungu…

Sódóma (1997)

Hljómsveitin Sódóma var starfandi 1997 og tók það árið þátt í hljómsveitakeppninni Rokkstokk í Keflavík. Í kjölfarið átti sveitin lag á safnplötunni Rokkstokk 97. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um hljómsveitina.

Sókrates [1] (1968-69)

Hljómsveitin Sókrates var skammlíf sveit, stofnuð síðla árs 1968. Upphaflegir meðlimir sveitarinnar voru þeir Daníel Jörundsson trommuleikari,  Eggert Ólafsson gítarleikari, Haraldur Þorsteinsson bassaleikari og Ómar Óskarsson gítarleikari en Gunnar Jónsson söngvari (Axlabandið o.fl.) kom inn í mars 1969. Sveitin, sem kenndi sig einkum við blústónlist, spilaði allnokkuð um sumarið en mannabreytingar urðu til þess að…

Spacemen (1967)

Á Akureyri starfaði árið 1967 hljómsveit skipuð ungum hljóðfæraleikurum sem kölluðu sig þá því framúrstefnulega nafni Spacemen. Sveitin var náskyld Bravó sem slegið hafði í gegn fáum árum áður en meðlimir Spacemen voru Árni K. Friðriksson trymbill, Gunnar Ringsted gítarleikari, Sævar Benediktsson bassaleikari, Jón Sigurðsson gítarleikari og Kristján Guðmundsson. Þeir Spacemen-liðar áttu flestir eftir að…

Spark [1] (1993-94)

Hljómsveitin Spark var frá Selfossi og Hveragerði og var starfandi 1993 og 94. Síðarnefnda árið átti sveitin lag á safnplötunni Sándkurl og voru meðlimir hennar Páll Sveinsson trommuleikari, Árni Ólason bassaleikari, Gunnar Ólason gítarleikari, Grétar Einarsson hljómborðsleikari, Elísabet Hólm Júlíusdóttir söngkona, Rakel Magnúsdóttir trompetleikari, Karl Þór Þorvaldsson ásláttarleikari og Óli Ólason söngvari. Önnur heimild segir…

Special treatment (1983-86)

Hljómsveitin Special treatment (síðar Greifarnir) var stofnuð á Húsavík þótt hún hafi starfað mest alla tíð sunnanlands, hún var t.a.m. um tíma skólahljósveit Fjölbrautaskólans við Ármúla. Eitthvað er á reiki hvenær sveitin var nákvæmlega stofnuð, líklega var það fyrri hluta ársins 1983 en „endanleg“ mynd komst á hana sumarið 1984 þegar Gunnar Hrafn Gunnarsson trommuleikari…

Spilverk þjóðanna (1974-79)

Spilverk þjóðanna var stofnað 1974 af nokkrum nemendum í Menntaskólanum við Hamrahlíð sem þá var tiltölulega nýstofnaður, reyndar hafði sveitin verið til í einhverri mynd áður, nokkurn veginn sami mannskapur hafði spilað saman undir ýmsum nöfnum allt frá árinum 1970, s.s. Hassansmjör, Matta K, Hljómsveit Árna Vilhjálmssonar og að síðustu Egils áður en endanlegt nafn,…

Spindlar (1999-2002)

Tríóið Spindlar frá Egilsstöðum keppti í Músíktilraunum 1999 og spilaði rokk í þyngri kantinum. Meðlimir Spindla voru Davíð Logi Hlynsson trommuleikari, Hafþór Máni Valsson söngvari og gítarleikari og Ragnar Jónsson bassaleikari. Sveitin komst ekki í úrslit en Ragnar bassaleikari var kjörinn besti bassaleikari tilraunanna. Sveitin hélt ótrauð áfram og átti efni á tveimur austfirskum safnplötum…

Spit and snot (1978-79)

Spit and snot (Spit & snot) er að öllum líkindum fyrsta hljómsveit Bjarkar Guðmundsdóttur. Sveitin, sem var eins konar pönksveit starfaði líklega veturinn 1978-79 og var eingöngu skipuð stúlkum. Engar upplýsingar er að finna um aðra meðlimi sveitarinnar en þær væru vel þegnar.

Splendit (1985-86)

Hljómsveitin Splendit (einnig nefnd Splendid) var stofnuð síðla árs 1985 og keppti í Músíktilraunum vorið 1986, sveitin komst ekki í úrslit keppninnar. Splendit var frá Keflavík og Njarðvík og innihélt sjö meðlimi, þar af eina stúlku. Litlar upplýsingar er að finna um sveitina en Ásmundur Örn Valgeirsson og Þórður Helgi Þórðarson (sem síðar skipuðu dúettinn…

Spliff (1999)

Dúettinn Spliff frá Keflavík keppti í Músíktilraunum Tónabæjar 1999 en hann lék eins konar break beat tónlist. Meðlimir Spliff voru Þórir Baldursson og Ingi Þór Ingibergsson. Þeir unnu tónlist sínar á tölvur en höfðu ekki árangur sem erfiði í tilraununum, komust ekki í úrslit.

Stafræn tækni (1999)

Hljómsveitin Stafræn tækni keppti í Músíktilraunum Tónabæjar 1999. Meðlimir sveitarinnar voru Halldór Hrafn Jónsson trommuleikari og forritari, Arnór H. Sigurðsson forritari og Hjörtur Gunnar Jóhannsson forritari. Sveitin komst ekki áfram í úrslit tilraunanna.

Steinblóm [1] (1969)

Steinblóm (hin fyrsta) var hljómsveit í Hagaskóla 1969 og hafði á að skipa þremenningunum Guðlaugi Kristni Óttarssyni (Þeyr o.fl.), Haraldi Jóhannessen (síðar ríkislögreglustjóra og Gunnari Magnússyni. Ekki liggur fyrir hver hljóðfæraskipan tríósins var en líklegt hlýtur að teljast að Guðlaugur hafi leikið á gítar.

Steinblóm [2] (1973-74)

Hljómsveitin Steinblóm (hin önnur í röðinni) starfaði í um eitt og hálft ár um á áttunda áratug liðinnar aldar og gaf út eina litla plötu. Sveitin var stofnuð sumarið 1972 en mun hafa verið eins konar afsprengi hljómsveitanna Júdasar og Jeremíasar, meðlimir hennar voru Skúli Björnsson gítarleikari, Þorsteinn Þorsteinsson söngvari (Jeremías, Trix o.fl.), Hrólfur Gunnarsson…

Steinblóm [3] (1981-82)

Hljómsveitin Steinblóm (hin þriðja) starfaði á Héraði veturinn 1981-82. Meðlimir sveitarinnar voru Elvar Vignisson bassaleikari, Gissur Kristjánsson gítarleikari, Rögnvaldur Jónsson gítarleikari, Sigurður Jakobsson trommuleikari, Stefán Ó. Stefánsson söngvari og Ármann Einarsson saxófónleikari. Sveitin gekk einhvern hluta líftíma síns undir nafninu Rimma.

Steingrímur Johnsen (1846-1901)

Steingrímur Johnsen (f. 10. desember 1846) var Reykvíkingur, og frumkvöðull í sönglist og söngkennslu á Íslandi í lok nítjándu aldar. Steingrímur var alla tíða áhugamaður um söng, fór til guðfræðináms í Kaupmannahöfn og kenndi við Lærða skólann í Reykjavík þegar heim kom. Hann hóf ennfremur að kenna söng við skólann frá 1877 þegar Pétur Guðjohnsen…

Stertimenni (1989-91)

Stertimenni er hljómsveit úr Vestmannaeyjum en hún tók þátt í Músíktilraunum Tónabæjar 1989, þá skipuð þeim Viktori Ragnarssyni bassaleikara, Hafþóri Snorrasyni bassaleikara, Óskari Matthíassyni gítarleikara, Steingrími Jóhannessyni hljómborðsleikara og Ómari Smárasyni söngvara. Sveitin var enn starfandi 1991 en það ár átti hún lag á safnplötunni Húsið sem gefin var út til styrktar Krýsuvíkursamtökunum. Meðlimir voru…

Still stone (2004)

Hljómsveitin Still stone var skammlíf sveit, stofnuð upp úr Doctuz og starfaði 2004. Meðlimir voru líklega þeir Sævar Steinn Guðmundsson bassaleikari, Gabríel Markan Guðmundsson gítarleikari og Oddur Júlíusson söngvari og gítarleikari en auk þeirra var fiðluleikari í sveitinni, nafn hans er ekki kunnugt.

Stimpilhringirnir (1998-2003)

Hljómsveitin Stimpilhringirnir starfaði um árabil, um og í kringum aldamótin 2000. Sveitin (stofnuð 1998) hafði að geyma meðlimi sem allir voru áhugamenn um motorcross-íþróttir og þegar VÍK (Vélhjólaíþróttaklúbburinn) hélt upp á tuttugu og fimm ára afmæli sitt árið 2003 gáfu Stimpilhringirnir út plötu til styrktar klúbbnum. Platan hlaut nafnið Í botni… og fékk ágætar viðtökur gagnrýnenda,…

Stjörnur [1] (1966-70)

Hljómsveitin Stjörnur úr Mosfellssveit starfaði um nokkurra ára tímabil, líklega á árunum 1966-70. Stjörnur hafði að geyma meðlimi á skólaaldri en hún kom m.a. fram í Stundinni okkar í Sjónvarpinu á þessum árum. Meðlimir sveitarinnar voru Jón Haraldsson söngvari, Sigurjón Ásbjörnsson orgelleikari, Árni Guðnason sólógítarleikari, Sigurður Andrésson bassaleikari, Bjarni Snæbjörn Jónsson sem einnig var bassaleikari,…

Stofnþel (1970-75)

Sögu hljómsveitarinnar Stofnþels má skipta í tvö tímabil, raunar má tala um tvær sveitir sem báðar störfuðu stutt. Fyrri sveitin var stofnuð sumarið 1970 og hafði að geyma þá Sævar Árnason gítarleikara, Herbert Guðmundsson söngvara, Kristmund Jónasson trommuleikara, Magnús Halldórsson orgelleikara og Gunnar Hermannsson bassaleikara. Þessi fyrri útgáfa sveitarinnar starfaði einungis til jóla sama ár…

Stopp (1980)

Hljómsveitin Stopp starfaði sumarið 1980, hugsanlega í Kópavogi. Engar upplýsingar er að finna um þessa sveit en þær væru vel þegnar.

Stólar (1974-75)

Hljómsveitin Stólar var stofnuð sumarið 1974 upp úr tveimur sveitum sem þá höfðu gert garðinn frægan, Náttúru og Rifsberju. Í fyrstu var sveitin skipuð þeim Sigurði Árnasyni bassaleikara og Ólafi Garðarssyni trommuleikara (sem komu úr Náttúru) og Þórði Árnasyni gítarleikara og Gylfa Kristinssyni söngvara (báðum úr Rifsberju) en um haustið bættist Ómar Óskarsson píanóleikari í…

Strados (1982-83)

Hljómsveitin Strados frá Stykkishólmi var starfandi á árunum 1982-83. Sveitin tók þátt í Músíktilraunum Tónabæjar og SATT haustið 1982 og komst þar í úrslit. Meðlimir Strados  voru Gunnar Sturluson gítarleikari, Rafn Júlíus Rafnsson bassaleikari, Sigurður Sigurþórsson gítarleikari, Hafþór Guðmundsson trommuleikari og Jóna Lovísa Jónsdóttir en hún var söngkona hljómsveitarinnar.

Stratos kvintettinn (1958-59)

Stratos kvintettinn lék á öldurhúsum Reykjavíkurborgar og nágrennis á árunum 1958 og 59 en engar upplýsingar er að finna hverjir skipuðu sveitina. Ýmsir söngvarar komu fram með kvintettnum meðan hann starfaði og má nefna þau Þóri Roff, Birnu Pétursdóttur, Hauk Morthens, Önnu Jóhannesdóttur og Jóhann Gestsson, sem söng með þeim lengst af.

Strump-serían [safnplöturöð] (1990-95)

Strump-serían svokallaða innihélt þrjá titla sem út komu á árunum 1990-95 og gefnir voru út á vegum útgáfu sem bar nafnið Veraldarkeröld, og var í eigu Magnúsar Axelssonar. Fyrstu tveir titlarnir voru í snælduformi en þriðji og síðasti var geislaplata. Strump-serían telst til neðanjarðarútgáfu, sem fór ekki hátt hjá almenningi en var í staðinn hvalreki…

Stuðlatríó (1965-91)

Stuðlatríó(ið) (sem upphaflega kom úr Kópavogi) starfaði um ríflega tuttugu og fimm ára skeið (með hléum þó) á síðari hluta liðinnar aldar. Eftir nokkra rannsóknarvinnu er niðurstaðan sú að Stuðlatríóið og Stuðlar sé sama sveitin og hún hafi gengið undir mismunandi nöfnum eftir meðlimafjölda hverju sinni, gengið er út frá því þar til annað kemur…

Stuna úr fornbókaverslun (1983-84)

Hljómsveitin Stuna úr fornbókaverslun var skammlíf pönksveit og var skipuð nokkrum ungum Kópavogsbúum en þeir voru Gunnar L. Hjálmarsson (Dr. Gunni) gítarleikari, Steinn Skaptason bassaleikari, Trausti Júlíusson trommuleikari og Stefán Þór Valgeirsson söngvari. Sveitin starfaði líklega 1983-84 og hafði tekið upp sautján laga snældu snemma vors 1984, sem útgáfufyrirtæki Gunnars, Erðanúmúsík, ætlaði til útgáfu en…

Suðvestan hvassviðri (1979-85)

Suðvestan hvassviðri var hljómsveit sem var starfrækt í Búðardal fyrir margt löngu, sveitin var stofnuð árið 1979 og starfaði til ársins 1985. Var gjarnan talað um að skammstöfunin á nafni sveitarinnar væri R.O.K. Meðlimir Suðvestan hvassviðris voru þeir Friðrik Sturluson gítarleikari, Helgi Björnsson gítarleikari, Sigurður Svansson bassaleikari og Ingþór Óli Thorlacius trommuleikari.

Sunnukórinn (1934-)

Sunnukórinn á Ísafirði er einn elsti starfandi blandaði kór landsins og hefur starfað samfleytt frá árinu 1934. Kórinn var stofnaður að frumkvæði þriggja mektarmanna á Ísafirði, þeirra Jónasar Tómassonar tónskálds og organista, Sigurgeirs Sigurðssonar sóknarprests og síðar biskups og Elíasar J. Pálssonar kaupmanns snemma árs 1934 en þeir höfðu fyrst rætt um stofnun kórs um…

Supreme (2008)

Hljómsveit starfandi 2008, skipuð starfsmönnum Glitnis. Guðmundur Torfason (fyrrv. knattspyrnumaður) söngvari og gítarleikari og Almar Guðmundsson voru í þessari sveit en ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um meðlimi sveitarinnar eða hljóðfæraskipan.

Sovkhoz (1991-94)

Sovkhoz var nýbylgjusveit sem starfaði á fyrri hluta tíunda áratugar liðinnar aldar en hún var stofnuð árið 1991 í bílskúr við Klambratún undir nafninu Sovkhoz burgers, nafni sveitarinnar var síðar breytt í Sovkhoz. Meðlimir sveitarinnar voru upphaflega þeir Höskuldur Kári Schram bassaleikari, Heiðar Hafberg gítarleikari, Jónas Hlíðar Vilhelmsson trommuleikari og Sigurður Þórðarson gítarleikari en síðar…

Svallbræður (1983)

Hljómsveitin Svallbræður voru norðlenskir, að öllum líkindum akureyskir og störfuðu 1983. Sveitin var skipuð ungum meðlimum en ekki liggja fyrir neinar upplýsingar um hana.

Svanfríður (1972-73)

Hljómsveitin Svanfríður er að líkindum ein þekktasta íslenska prog-rokkssveitin en minning hennar hefur haldist enn fremur á lofti vegna þess hve eftirsótt þeirra eina breiðskífa er af plötusöfnurum. Sveitin var stofnuð snemma árs 1972 af þeim Pétri Kristjánssyni söngvara, Gunnari Hermannssyni bassaleikara, Birgi Hrafnssyni gítarleikara og Sigurði Karlssyni trommuleikara. Tveir síðast töldu komu úr hljómsveitinni Ævintýri…

Svanhvít Egilsdóttir (1914-98)

Nafn Svanhvítar Egilsdóttur söngkonu og -kennara var nokkuð þekkt á árum áður en síðari tíma kynslóðir þekkja það síður, saga hennar er þó í mörgu mjög merkileg. Svanhvít (f. 1914) ólst upp í Hafnarfirði hjá fósturforeldrum en hún átti tvíburasysturina Nönnu, sem einnig átti eftir að starfa við tónlist. Þær ólust upp í sitt hvoru lagi. Svanhvít…

Svartálfarnir (1975)

Hljómsveit með þessu nafni var starfandi sumarið 1975 en engar upplýsingar liggja fyrir um hana, skipan eða líftíma en þær væru vel þegnar.

Svarti túlípaninn (1973-75)

Hljómsveitin Svarti túlípaninn starfaði um miðjan áttunda áratug liðinnar aldar, á árunum 1973 til 75, á Húsavík eða nágrenni. Svarti túlípaninn var stofnuð árið 1973 og voru meðlimir hennar þeir Þorvaldur Daði [Halldórsson?] gítarleikari, Halldór Hákonarson bassaleikari, Stefán Helgason trommuleikari, Theódór Sigurðsson gítarleikari og Guðmundur Valur Stefánsson söngvari og gítarleikari. Einhverjar mannabreytingar urðu á Svarta…

Svartur pipar (1991-94)

Svartur pipar var hljómsveit, líklegast stofnuð haustið 1991. Ekki liggja fyrir upplýsingar um stofnmeðlimi hennar en Hermann Ólafsson (Lótus o.fl.) var fyrsti söngvari sveitarinnar. Sumarið 1992 gekk söngkonan Margrét Eir Hjartardóttir til liðs við sveitina en hún hafði unnið Söngkeppni framhaldsskólanna árið áður. Aðrir meðlimir hennar lengst af voru Gylfi Már Hilmisson slagverksleikari og söngvari, Ari…

Svavar Lárusson (1930-2023)

Þótt söngferill Svavars Lárussonar hafi spannað fremur stuttan tíma er hann einn af frumkvöðlum dægurlagatónlistar á Íslandi, en hann varð þeim mun meira áberandi á öðrum sviðum. Norðfirðingurinn Svavar Lárusson (f. 1930) var orðinn nokkuð þekktur söngvari með danshljómsveitum (m.a. með Hljómsveit Gunnars Egilson) þegar honum bauðst vorið 1952 að syngja inn á plötur hjá…

Svefngalsar (1986)

Hljómsveitin Svefngalsar er líkelga flestum gleymd en hún vakti nokkra athygli 1986 er hún gaf út sína fyrstu og einu plötu. Svefngölsum skaut skyndilega upp á sjónarsviðið með fullunna plötu haustið 1986 en hún hafði þá lítið sem ekkert leikið opinberlega, reyndar virðist hún ekkert hafa spilað opinberlega þrátt fyrir að hafa ætlað sér það…