Getraun 9 – íslensk jólatónlist [2]
Lesendur Glatkistunnar geta spreytt sig á misþungum getraunum um íslenska tónlist – hér er aftur spurt um íslenska jólatónlist.
Lesendur Glatkistunnar geta spreytt sig á misþungum getraunum um íslenska tónlist – hér er aftur spurt um íslenska jólatónlist.
Tónleikadagskrá Dómkirkjunnar verður með eftirfarandi hætti fram til jóla. Á föstudagskvöldið 19. desember klukkan 20:00 verða jólatónleikar Tónlistarskólans í Reykjavík. Efnisskráin er afar fjölbreytt og verður boðið upp á úrval af því besta úr vetrarstarfinu. Leikin verða verk eftir W.A. Mozart, I. Clarke, A. Piazzolla, E. Dohnaniy, C. Saint-Saëns, G.F. Händel, J. Chr. Bach, L.…
Nýlega kom út platan Mitt er þitt, með Kammerkór Mosfellsbæjar en á henni syngur kórinn fjórtán lög úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímum. Meðal lagahöfunda má nefna Gunnar Reyni Sveinsson, John Speight, Sigur Rós og Mario Castelnuovo-Tedesco svo fáeinir séu nefndir. Mitt er þitt er fyrsta plata Kammerkórs Mosfellsbæjar. Hljómsveit undir stjórn Reynis Sigurðssonar…
Í dag er eitt skráð afmælisbarn meðal tónlistarfólks: Á þessum degi hefði Szymon Kuran fiðluleikari og tónskáld átt afmæli, hann var Pólverji sem flutti til Íslands og starfaði hér til dauðadags 2005 en hann var fæddur 1955. Szymon starfrækti nokkrar sveitir hér á landi og lék inn á fjölmargar plötur hérlendis.
Dimma – Vélráð GB records GB008 (2014) Ferli hljómsveitarinnar Dimmu má algjörlega skipta í tvennt, það má jafnvel ganga svo langt að tala um tvær hljómsveitir. Fyrir og eftir hlé. Sveitin kom fyrst fram á sjónarsviðið fyrir um tíu árum sem leifar af hljómsveitinni Stripshow sem hafði vakið athygli utan landsteinanna, þá gaf hún út…
Í dag eru skráð tvö afmælisbörn, þau eru þessi: Herbert Guðmundsson söngvari (Hebbi) er 61 árs. Hann var áður söngvari fjölmargra hljómsveita eins og Pelican, Eikur, Raflosts, Tilveru, Sólskins, Ástarkveðju, Stofnþels og Kan svo nokkrar séu nefndar en þekktastur er hann þó fyrir sólóferil sinn, fyrst og síðast skal þar nefndur stórsmellurinn Can‘t walk away…
Kraumsverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í húsakynnum Kraums við Vonarstræti nú síðdegis á fimmtudaginn. Kraumsverðlaunin eru verðlaun sem veitt eru sex flytjendum sem gefið út plötu á árinu er þykja hafa skarað fram úr, fyrr í mánuðinum var birtur úrvalslisti tuttugu platna sem valinn hafði verið af öldungaráði verðlaunanna en þessar sex plötur eru…
Afmælisbörn dagsins í dag eru eftirfarandi: Friðrik S. Kristinsson kórstjórnandi með meiru er 52 ára, hann hefur stýrt kórum eins og Karlakór Reykjavíkur, Snæfellingakórnum, Unglingakór Hallgrímskirkju, Drengjakór Reykjavíkur og Landsbankakórnum en hann er menntaður söngkennari og starfar einnig sem slíkur. Hann hefur sungið sjálfur inn á plötur enda söngmenntaður. Ástvaldur (Zenki) Traustason hljómborðsleikari er 48…
Lesendur Glatkistunnar geta spreytt sig á misþungum getraunum um íslenska tónlist – hér er spurt um íslenska jólatónlist.
Í dag eru tveir tónlistarmenn sem eiga afmæli: Lárus Halldór Grímsson tónskáld, hljómsveitastjórnandi og hljómborðs- og flautuleikari er sextugur á þessum degi. Hann nam hér heim og í Hollandi, lék með mörgum hljómsveitum hér á árum áður s.s. Sjálfsmorðssveit Megasar, Súld, Með nöktum, Þokkabót, Eik og Deildarbungubræðrum og lék þ.a.l. á plötum þeirra og margra…
Tvö afmælisbörn í dag: Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór á afmæli og er 47 ára, hann nam söng hér heima og á Ítalíu, hefur starfað m.a. í Íslensku óperunni, með Frostrósum og Mótettukórnum, auk þess að syngja á plötum annarra tónlistarmanna. Jóhann Friðgeir hefur gefið út fjórar sólóplötur. Orri Harðarson trúbador er 42 ára, hann vakti…
Sindri Eldon – Bitter & resentful Smekkleysa SM169CD, 2014 Sindri Eldon hefur goldið þess frá fæðingu að vera sonur foreldra sinna, hann hefur þó alltaf farið sínar eigin leiðir í tónlistarsköpun sinni, verið í hljómsveitum á borð við Dáðadrengi, Dynamo fog, Slugs og Desidiu sem flestar hafa sent frá sér efni, jafnvel plötur, nú síðast…
Breski tónlistarmaðurinn Jamie xx meðlimur The xx, Jimmy Edgar og Ryan Hemsworth hafa nú bæst við dagskrá tónlistarhátíðarinnar Sónar Reykjavík 2015 sem fram fer í Hörpu dagana 12.-14. febrúar. Einnig bætast nú við innlendu listamennirnir Jón Ólafsson & Futuregrapher, Emmsjé Gauti, Páll Ívan frá Eiðum, Kött Grá Pje, AMFJ og Bjarki. Alls hafa um 40 listamenn og hljómsveitir staðfest komu sína á…
Jólaplötur skipa stóran sess í tónlistarlífi Íslendinga. Árlega kemur út fjöldinn allur af slíkum plötum og eru sjálfsagt mun fleiri en fólk gerir sér grein fyrir, ástæðan fyrir því er það mikla magn jólasafnplatna sem fyrirtæki gefa út og senda viðskiptavinum sínum og velunnurum, og rata ekki endilega í plöturekkana. Útgefnar jólaplötur á Íslandi skipta…
Nokkur afmælisbörn tengjast deginum í dag: Einar Hólm söngvari og trymbill er 69 ára, hann gaf út eina litla plötu 1973 en var trommuleikari í mörgum hljómsveitum hér áður s.s. Pónik, Stuðlatríóinu, Næturgölum og Hljómsveit Ólafs Gauks svo einhverjar sé nefndar. Einar er faðir Ólafs Hólm trommara Nýdanskrar og margir trommuleikarar eru í ætt hans.…
Kvennakórinn Kyrjurnar heldur jólatónleika sína í Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 11. desember nk. klukkan 20 og verða þeir undir yfirskriftinni „Ég man þau jólin…“. Á tónleikunum mun kórinn syngja jólalög úr ýmsum áttum, bæði innlend og erlend. Einsöngvari með kórnum á fimmtudagskvöldið verður Valgerður Guðnadóttir og við píanóið situr Helgi Már Hannesson. Stjórnandi Kyrjanna er Sigurbjörg Hvanndal…
GusGus – Mexico Sena SCD 613 (2014) GusGus er að verða tuttugu ára gömul en upphaf sveitarinnar verður rakið til 1995 þegar hópur ungs fólks vann að kvikmyndinni Pleasure, sem fór ekki hátt en tónlistin úr myndinni varð í raun að fyrstu plötu sveitarinnar, þetta varð eins konar fjöllistahópur sem gerði tónlistina fljótlega að aðaláherslu…
Afmælisbörn dagsins: Björgvin Franz Gíslason leikari er 37 ára, hann vakti fyrst athygli fyrir söng í Óla prik syrpu sem naut vinsælda en hefur síðan aðallega verið tengdur barnatónlist, t.d. Benedikt búálfi, Stundinni okkar o.þ.h. Hermann Gunnarsson (1946-2013) hefði einnig átt afmæli á þessum degi, þessi landsfrægi skemmtikraftur kom víða við á sínum ferli og…
Þann 15. desember nk. heldur Ragnheiður Gröndal söngkona upp á 30 ára afmælisdaginn sinn með stórtónleikum í Norðurljósasal tónlistarhússins Hörpu. Þar verður um að ræða spennandi ferðalag í gegnum feril hennar en hún á að baki átta plötur auk margra annarra verkefna. Ragnheiður hefur haft viðkomu í ýmsum tegundum tónlistarinnar s.s. djassi, poppi og blús…
Í dag eru afmælisbörnin tvö: Guðni (Þórarinn) Finnsson bassaleikari er 44 ára, Guðni hefur leikið með hljómsveitum eins og Áhöfninni á Húna, Bikarmeisturunum, Dr. Spock, Ensími, Pollapönki, Rass og mörgum fleirum. Rafn Jónsson (Rabbi) hefði líka átt afmæli þennan dag en hann lést 2004 úr MND sjúkdómnum. Rabbi (f. 1954) hefði orðið sextugur en þekktustu…
Lesendur Glatkistunnar geta spreytt sig á misþungum getraunum um íslenska tónlist – hér er spurt um söngvara og lög sem þeim tengjast
Afmælisbörn dagsins eru þrjú: Jórunn Viðar tónskáld er 96 ára, hún nam tónsmíðar í Þýskalandi, Bandaríkjunum og Austurríki á sínum tíma og hefur samið fjöldann allan af þekktum lögum s.s. Það á að gefa börnum brauð, Kall sat undir kletti og tónverkið Únglíngurinn í skóginum. Jórunn hefur aukinheldur samið tónlist fyrir kvikmyndir og ballett, og…
Brátt kemur hin blíða tíð jólanna og þá ætla félagar í Karlakór Akureyrar – Geysi að leggja sitt af mörkum og efna til jólatónleika á aðventu. Á tónleikunum verða sungnir jólasöngvar úr ýmsum áttum, bæði innlendir og erlendir, rólegir og hátíðlegir söngvar en einnig léttir og fjörugir. Jólatónleikar í Akureyrarkirkju eru ákaflega hátíðleg stund. Tónleikar…
Afmælisbarn dagsins: Steingrímur Þórhallsson tónskáld, organisti og kórstjóri er fertugur, hann hefur einnig gengið undir nafninu Stein Thor og sigraði í alþjóðlegri dægurlagasamkeppni undir því nafni.
Úlfur Kolka – Borgaraleg óhlýðni Vesturbær VSB001 (2014) Íslenska rappsenan hefur fyrir löngu slitið barnsskónum og náði kannski hámarki sínum fyrir um fimmtán árum, þrátt fyrir að ýmsir hafi spáð henni stuttri ævi hefur enn ekki alveg fjarað undan henni og reyndar hefur hún lifað ágætu lífi á köflum. Úlfur Kolka Freysson var einn þeirra…
Sigrún Pálmadóttir sópransöngkona er ein af okkar allra fremstu óperusöngkonum og sló eftirminnilega í gegn í hlutverki Víólettu Valéry í La traviata hjá Íslensku óperunni vorið 2008, og hlaut hún m.a. Grímuna í flokknum Söngkona ársins fyrir hlutverkið. Sigrún er búsett á Ísafirði og kennir þar söng við tónlistarskólann, ásamt fleiri tónlistarstörfum, en stígur nú…
Og þá er það afmælisbarn dagsins á degi íslenskrar tónlistar: Lýður Árnason læknir og tónlistarmaður frá Flateyri er 52 ára, hann hefur komið víða við á tónlistarferli sínum, verið í hljómsveitum á borð við Kartöflumúsunum, Vítamín og Göglum svo fáeinar séu nefndar.
Kraumsverðlaunin, plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs, verða afhent í sjöunda sinn í ár. Venju samkvæmt þá birtir Kraumur 20 platna úrvalslista verðlaunanna, Kraumslistann, í byrjun desember yfir þau verk sem þykja hafa skarað framúr í íslenskri tónlist á árinu. Kraumsverðlaunin sjálf verða svo afhent síðar á mánuðinum. Kraumslistinn, úrvalslisti Kraumsverðlaunanna, er valinn af tíu manna dómnefnd, svokölluðu…
Í dag eru afmælisbörnin eftirfarandi: Ágúst Fannar Ásgeirsson hljómborðsleikari Jakobínurínu er 24 ára. Sigurður Ólafsson söngvari og hestamaður (1916-93) hefði einnig átt afmæli þennan dag, hann söng inn á fjölmargar 78 snúninga plötur á sínum tíma og breiðskífu einnig þegar þær komu til sögunnar.
Karlakórinn Ernir undir stjórn Beáta Joó mun á næstu dögum syngja á fernum aðventutónleikum á heimaslóðum. Á fimmtudagskvöldið 4. desember verður kórinn með aðventutónleika í Félagsheimilinu á Þingeyri klukkan 20 og á föstudagskvöldið (5. desember) verða þeir í Suðureyrarkirkju klukkan 20 á aðventukvöldi sem þar verður haldið. Á sunnudaginn (7. desember) verða Ernir með tvenna…
Schola cantorum býður upp á fjölbreytt úrval tónleika í jólamánuðinum en þeir verða sem hér segir: Aðventutónleikar í Hallgrímskirkju 3. des kl. 12:00 – Kom þú, kom vor Immanúel Á fyrri hádegistónleikum sínum á aðventunni býður Schola cantorum upp á unaðsfagra kórtónlist tengda aðventu og jólum. Hér er upplagt tækifæri til að koma í Hallgrímskirkju…
Afmælisbarn dagsins: Pétur Östlund trommuleikari er 71 árs, hann lék með mörgum af þekktustu sveitum bítlatímabilsins og eru Hljómar og Óðmenn þeirra þekktastar en hann var síðar kunnari fyrir djasstrommuleik og er mjög virtur sem slíkur. Pétur á að baki eina sólóplötu.
Í dag eru afmælisbörnin tvö: Toggi (Þorgrímur Haraldsson) er 35 ára, hann hefur gefið út tvær sólóplötur en er e.t.v. þekktastur fyrir að hafa samið lagið Þú komst við hjartað í mér. Ragnar Sólberg (Rafnsson) er 28 ára gamall, hann hefur sungið og leikið á hin ýmsustu hljóðfæri í mörgum hljómsveitum en hann var aðeins…
Vinir Dóra eiga 25 ára afmæli í ár og ætla að enda afmælisárið með Jólablús á Rúbín við Flugvallarveg þann 18. des. nk. kl 21.00. Húsið opnar kl. 19.00. Jólablús Vina Dóra hefur notið mikilla vinsælda árum saman, skemmtilegur og allt öðru vísi en aðrir viðburðir á þessum árstíma. Jólablúsinn er kærleiksboðskapur og gleðistund sem enginn…
Afmælisbörnin í dag eru þessi: (Guðmundur) Magni Ásgeirsson söngvari Á móti sól er 36 ára, hann hefur einnig sungið með sveitum eins og Shape, gefið út sólóplötur og sungið í undankeppnum Eurovision svo eitthvað sé nefnt, Magni hlaut sína fimmtán mínútna frægð þegar hann tók þátt í Rock star supernova keppninni. Kristján Páll Kristjánsson bassaleikari…
Hér verður fjallað um nöfn hljómsveita á Íslandi, af nógu er að taka og því er rétt að skipta umfjölluninni í nokkrar minni greinar. Að þessu sinni eru það trúarbragðatengd hljómsveitanöfn sem eru til umfjöllunar, þar ber langhæst kristni og norræna goðafræði. Hægt er að tala um vakningar eða tískubylgjur þegar kemur að því að…
Hér eru afmælisbörn dagsins: Pálína Vagnsdóttir söngkona frá Bolungarvík er fimmtug, hún er af mikilli tónlistarfjölskyldu frá Bolungarvík, söng m.a. með hljómsveitinni Septu og hefur sungið inn á nokkrar plötur. Höskuldur Örn Lárusson söngvari og gítarleikari Spoon er 45 ára. Hann hefur verið í fjölmörgum öðrum hljómsveitum og má þar m.a. nefna Mikka ref, Munka…
Olga vocal ensemble – Olga vocal ensemble Olga vocal ensemble OVE001 (2014) Íslensk/hollensk/rússneski söngkvintettinn Olga vocal ensemble hefur verið starfandi frá 2012 í Utrecht í Hollandi en þar hafa þeir félagar verið í söngnámi undanfarið undir handleiðslu Jóns Þorsteinssonar. Íslendingarnir voru upphaflega þrír fimmtu Olgu vocal ensemble en fækkað hefur um einn þeirra og er…
Afmælisbörnin eru tvö að þessu sinni: Gunnar Þór Eggertsson gítarleikari er 41 árs, hann er þekktastur fyrir veru sína í Landi og sonum en hann var einnig gítarleikari Vina vorra og blóma. Pétur Guðjohnsen tónlistarfrömuður hefði einnig átt afmæli en hann fæddist þennan dag árið 1812. Pétur stofnaði kór pilta við Latínuskólann í Reykjavík og…
Afmælisbarn dagsins er eitt að þessu sinni: Páll Jóhannesson einsöngvari frá Þverá í Öxnadal er 64 ára, hann nam söng á Ítalíu á sínum tíma og hefur gefið út tvær plötur.
Lesendur Glatkistunnar geta spreytt sig á misþungum getraunum um íslenska tónlist – hér er spurt um Björku Guðmundsdóttur.
Afmælisbörn dagsins eru þessi: Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona á stórafmæli en hún er fimmtug. Björg nam söng á Akureyri og fór síðan í framhaldsnám til Bretlands þar sem hún lauk námi 1999. Hún hefur gefið út þrjár sólóplötur (þar af eina jólaplötu), sungið á plötum annarra listamanna og á tónleikum og óperusýningum hér heima sem erlendis…
Fyrir Gaza er safnplata gefin út fyrir íbúa Gaza þar sem 19 listamenn og hljómsveitir koma saman í nafni mannréttinda og mannúðar. Má þar nefna GusGus, FM Belfast, Sóley, Cell 7, Mammút, Prins Póló og Mugison. Allur ágóði af sölu plötunnar rennur til AISHA – Associal for Women and Child Protection sem sinnir neyðarhjálp fyrir konur og barnafjölskyldur á Gaza svæðinu. Samtökin standa einnig fyrir námskeiðum…
Afmælisbarn dagsins er eitt að þessu sinni: Sveinbjörn B. Thorarensen (Hermigervill) á stórafmæli en hann er þrítugur. Hermigervill hefur gefið út nokkrar sóló raftónlistarplötur en hann hefur einkum sérhæft sig í vinna úr eldri tónlist, t.d. gömlum íslenskum dægurlögum í nýjum búningi. Hann hefur unnið með ýmsum tónlistarmönnum hér heima s.s. Retro Stefson, Þórunni Antoníu og…
DJ flugvél og geimskip – Glamúr í geimnum Eldflaug records [án útgáfunúmers] (2013) Steinunn Harðardóttir er með sérstakari listamönnum og aukasjálf hennar, Dj flugvél og geimskip, styður það. Steinunn hefur myndlistabakgrunn sem að hluta til skýrir nálgun hennar á tónlist, sem er óhefðbundin í öllum skilningi. Önnur skýring á nálgun hennar kann að vera tónlistaruppeldi…
Nokkrir tónlistarmenn eiga afmæli í dag: Eyþór Arnalds söngvari og sellóleikari Todmobile á stórafmæli dagsins en hann er fimmtugur. Hann er líkast til þekktastur fyrir veru sína í Todmobile sem naut gríðarlegra vinsælda á sínum tíma en hann starfrækti einnig dúettinn Bong. Áður hafði hann verið í sveitum eins og Kolossus-band og Tappa tíkarrassi. Eyþór…
Afmælisbörnin í dag eru eftirfarandi: Erlingur Björnsson (Kristján Erlingur Rafn Björnsson) gítarleikari Hljóma á stórafmæli dagsins, hann er sjötugur. Erlingur varð ungur ein táknmynda bítilæðisins á Íslandi þótt hann væri ekki þeirra mest áberandi. Hann var gítarleikari Hljóma og Thor‘s hammer en hafði áður spilað með Skuggum og Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar í Keflavík, gerðist síðar…
Afmælisbarn dagsins er: Guðrún Ágústsdóttir (f. 1897) hefði átt afmæli á þessum degi en þessi sópransöngkona var með fyrstu óperusöngkonum okkar Íslendinga, hún tók þátt í fyrstu óratoríunni sem sett var á svið á Íslandi og söng í tilraunaútsendingum útvarps fyrir 1930. Hún lést 1983.
Fjölmörg afmælisbörn koma við sögu í dag en þau eru þessi: Jónas Tómasson (yngri) tónskáld og tónlistarfrömuður frá Ísafirði er 68 ára, hann starfaði lengi með Heimi Sindrasyni undir nafninu Heimir og Jónas. Áskell Másson tónskáld og ásláttarleikari er 61 árs, hann hefur verið í hljómsveitum eins og Rússíbönum, Náttúru, Combó Þórðar Hall og Acropolis.…
Ýlir – tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk hefur hafið umsóknarferli sitt fyrir tónleika og verkefni sem fyrirhuguð eru á árinu 2015. Umsóknarfrestur er til 15. janúar. Umsóknarferlið er opið fyrir tónlistarmenn, hljómsveitir, hópa og félagasamtök. Stjórn sjóðsins vill hvetja tónlistarmenn sem og aðra sem hyggja á tónleikahald og skipulagningu tónlistarverkefna í Hörpu, úr öllum geirum tónlistar, til…