Kraumsverðlaunin, plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs, verða afhent í sjöunda sinn í ár. Venju samkvæmt þá birtir Kraumur 20 platna úrvalslista verðlaunanna, Kraumslistann, í byrjun desember yfir þau verk sem þykja hafa skarað framúr í íslenskri tónlist á árinu. Kraumsverðlaunin sjálf verða svo afhent síðar á mánuðinum.
Kraumslistinn, úrvalslisti Kraumsverðlaunanna, er valinn af tíu manna dómnefnd, svokölluðu öldungaráði, sem skipað er fólki sem hefur margvíslega reynslu af því að hlusta á, vinna með og fjalla um íslenska tónlist. Ráðið skipa Árni Matthíasson (formaður dómnefndar), Benedikt Reynisson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, María Lilja Þrastardóttir, Ólafur Halldór Ólafsson, Ragnheiður Eiríksdóttir, Trausti Júlíusson, Valdís Thor og Þórunn Edda Magnúsdóttir. Stærri dómnefnd hefur nú hafið störf og sér um að velja 6 plötur af Kraumslistanum sem verðlauna skal sérstaklega og hljóta munu Kraumsverðlaunin.
Síðasti fundur öldungarráðs Kraumsverðlaunanna var í gærkvöldi og niðurstaðan er komin. Eftir að hafa hlusta á hátt í annað hundrað hljómplatna sem komið hafa út á árinu þá eru það 20 verk sem þykja skara framúr þegar það kemur að því að velja og vekja athygli á því sem er nýtt og spennandi í íslenskri tónlist á árinu 2014 á sviði plötuútgáfu.
Kraumslistinn 2014, úrvalslisti Kraumsverðlaunanna, er eftirfarandi:
- AdHd – AdHd 5
- Anna Þorvaldsdóttir – Aerial
- Ben Frost – Aurora
- Börn – Börn
- Grísalappalísa – Rökrétt framhald
- Hekla Magnúsdóttir – Hekla
- Kippi Kaninus – Temperaments
- Low Roar – O
- M-Band – Haust
- Oyama – Coolboy
- Óbó – Innhverfi
- Ólöf Arnalds – Palme
- Pink Street Boys – Trash From the Boys
- Russian Girls – Old Stories 2
- Sindri Eldon – Bitter & Resentful
- Singapore Sling – The Tower of Foronicity
- Skakkamanage – Sounds of Merry Making
- Skúli Sverris, Anthony Burr & Yungchen Lhamo – They Hold it For Certain
- Úlfur Kolka – Borgaraleg óhlýðni
- Þórir Georg – Ræfill
Kraumslistanum og Kraumsverðlaununum er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi – og þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Verðlaunin eru ekki bundin neinni ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar.
Það er von aðstandenda Kraumsverðlaunanna að Kraumslistinn og verðlaunin veki athygli á þeirri grósku og fjölbreytni sem einkennir íslenskt tónlistarlíf og plötuútgáfu. Tímasetning tilnefninga og úthlutunar Kraumsverðlaunanna er miðuð við jólagjafaflóðið, þegar tónlistarmenn reiða sig hvað mest á plötusölu og ætla má að sóknarfæri séu fyrir íslenska tónlist að rata í fleiri jólapakka enda er tónlist góð og sígild jólagjöf.

Komdu til mín svarta systir með Mammút – ein af verðlaunaplötunum 2013
Kraumsverðlaunin snúast ekki um eina ákveðna verðlaunaplötu heldur að reyna að beina kastljósinu að Kraumslistanum í heild sinni og síðan að velja og verðlauna sérstaklega sex hljómplötur sem hljóta Kraumsverðlaunin. Nú hefur níu manna öldungarráð verðlaunanna lokið störfum og valið 20 plötur Kraumslistans, úrvalslista Kraumsverðlaunanna. Stærri dómnefnd tekur nú við velur svo af þeim lista sex verðlaunaplötur ársins.
Kraumur mun styðja við verðlaunaplöturnar og reyna auka möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri erlendis með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum af tónlistarfólkinu eða útgefendum þeirra og dreifa þeim til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir,útgáfur, umboðsskrifstofur, fjölmiðlar o.s.frv.), m.a. í samstarfi við aðila og tengiliði hérlendis.
Meðal þeirra sem hlotið hafa Kraumsverðlaun fyrir verk sín frá því þau voru fyrst veitt árið 2008 eru; Mammút, Cell 7, Sin Fang, Grísalappalísa, Gunnar Andreas Kristinsson, Just Another Snake Cult, DJ flugvél og geimskip, Ásgeir Trausti, Hjaltalín, Retro Stefson, Samaris, Sóley, Lay Low, Daníel Bjarnason, Ólöf Arnalds, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Hildur Guðnadóttir, Agent Fresco, Hugi Guðmundsson, Ísafold kammersveit og FM Belfast.
Aðstandandi Kraumslistans er Kraumur tónlistarsjóður sem er sjálfstætt starfandi sjóður á vegum Auroru velgerðarsjóðs. Kraumur hefur það að meginhlutverki að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.