Söngvakeppni Sjónvarpsins 2006 – Til hamingju Ísland / Congratulations

Árið 2006 rann upp og loksins var komið að því að undankeppni skyldi haldin eftir þriggja ára hlé, og hún skyldi verða í stærra lagi enda átti Ríkissjónvarpið fjörtíu ára afmæli á árinu auk þess sem tuttugu ár voru liðin frá því Ísland keppti fyrst, með Gleðibankann. Ennfremur var söngvakeppnin sett í hendurnar á utanaðkomandi…

Söngvakeppni Sjónvarpsins 2007 – Ég les í lófa þínum / Valentine lost

Fyrirkomulagið 2007 var með svipuðu sniði og árið áður, tuttugu og fjögur lög kepptu í þremur undanþáttum um níu sæti í úrslitunum en árið á undan höfðu þau sæti reyndar verið fimmtán eins og áður er getið. Lögin níu í úrslitunum voru þessi: Áfram með Sigurjóni Brink eftir hann og Bryndísi Sunnu Valdimarsdóttur en textinn…

Söngvakeppni Sjónvarpsins 2008 – Fullkomið líf / This is my life

Óhætt er að segja að Ríkissjónvarpið hafi reynt að gera þátt undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins sem mestan fyrir árið 2008 með mjög svo breyttu fyrirkomulagi, reyndar svo mjög að mörgum þótti nóg um. Herlegheitin hófust á haustmánuðum þegar skemmtiþátturinn Laugardagslögin hóf göngu sína en hann var í umsjá Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur og Gísla Einarssonar. Í ellefu…

Söngvakeppni Sjónvarpsins 2009 – Is it true?

Undirbúningur fyrir næstu undankeppni hófst þegar um haustið 2008 og er ekki laust við að meiri bjartsýni ríkti meðal landans eftir að Eurobandið hafði komist upp úr forkeppninni um vorið. Sjónvarpinu var þó þröngur stakkur búinn í kjölfar kreppuástands að ljóst að yfirbragð og umgjörð keppninnar yrði með látlausara móti, t.d. færi keppnin fram í sjónvarpssal…

Söngvakeppni Sjónvarpsins – undankeppni Eurovision (1986-)

Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (Evróvisjón söngvakeppnin eða Eurovision song contest) hefur lengi verið vinsælt sjónvarpsefni á Íslandi sem annars staðar í álfunni en keppnin hefur verið haldin frá árinu 1956. Hún hefur þó einnig verið vinsælt þrætuefni og ekki hafa allir verið á eitt sáttir um gæði keppninnar, sumir hafa litið á hana sem ruslfæði í…

Afmælisbörn 19. janúar 2015

Í dag eru fjölmörg afmælisbörn, þau eru eftirfarandi: Sigurður Rúnar Jónsson (Diddi fiðla) er 65 ára. Hann hefur vægast sagt komið víða við á sínum ferli enda fjölhæfur með afbrigðum, spilar á flest hljóðfæri, útsetur og semur tónlist. Framan af var hann í hljómsveitum eins og Náttúru, bjó síðar í Vestmannaeyjum þar sem hann stjórnaði…

Deildarbungubræður (1976-79)

Deildarbungubræður var hljómsveit sem herjaði á sveitaballamarkaðinn á árunum 1977-79 og náði að gefa út tvær stórar plötur á þeim tíma. Hljómsveitin var upphaflega sett saman sem grínverkefni fyrir útihátíð á Melgerðismelum í Skagafirði um verslunarmannahelgina 1976 en þar lék hún í pásu hjá Eik, Deildarbungubræður skipuðu að sögn þeir Axel Einarsson gítarleikari, Bragi Björnsson…

Afmælisbörn 18. janúar 2015

Tvö afmælisbörn koma við sögu í dag: Friðrik Vignir Stefánsson orgelleikari af Skaganum er 53 ára. Hann nam orgelleik á Akranesi og Reykjavík, fór til Danmerkur í framhaldsnám og hefur starfað sem organisti, stjórnandi kóra og skólastjóri tónlistarskóla t.d. í Grundarfirði og Seltjarnarnesi. Hann var ennfremur í sönghópnum Sex í sveit. Söngvarinn Páll Rósinkranz (Óskarsson)…

Afmælisbörn 16. janúar 2015

Í dag er eitt afmælisbarn skráð hjá Glatkistunni: Arnar Sigurbjörnsson gítarleikari er 66 ára en hann var einkum áberandi í popp- og sveitaballasenunni á áttunda áratug síðustu aldar. Arnar lék með hljómsveitum eins og Brimkló, Mexíkó, Strengjum, Ævintýri, Action og Flowers, og söng stundum líka með sveitum sínum. Hann söng t.d. háu röddina í laginu…

Afmælisbörn 15. janúar 2015

Afmælisbarn dagsins er eitt að þessu sinni: Erlingur Vigfússon óperusöngvari frá Hellissandi hefði átt afmæli í dag en hann fæddist á þessum degi árið 1936. Eftir söngnám í Reykjavík fór Erlingur til framhaldsnáms á Ítalíu og síðar Þýskalands þar sem hann starfaði síðan við Kölnaróperuna frá 1969 til 1998 þegar hann kom heim. Ekki er…

Afmælisbörn 13. janúar 2015

Afmælisbörn dagsins eru eftirfarandi: Óskar Páll Sveinsson hljóð- og upptökumaður er 48 ára. Hann var á yngri árum söngvari og hljómborðsleikari hljómsveitarinnar Medium en sneri sér síðan að upptökufræðum, starfaði sem tæknimaður hjá Ríkisútvarpinu og við upptökur og hljóðblöndun á fjölmörgum plötum hér heima áður en hann fluttist til Bretlands og vann þar við upptökur…

Afmælisbörn 12. janúar 2015

Afmælisbarn dagsins er eftirfarandi: (Sæmundur) Rúnar Þórisson gítarleikari frá Ísafirði er sextugur á þessum degi en hann hefur komið víða við á löngum tónlistarferli. Rúnar starfaði á árum áður með sveitum eins og Ýr, Danshljómsveit Vestfjarða, Grafík, Haukum, Dínamít og Dögg en henn vann einnig náið með Rafni Jónssyni á sólóplötum hans. Á síðari árum…

Afmælisbörn 11. janúar 2015

Tvö afmælisbörn eiga daginn í dag: Sigurður Rúnar Samúelsson (Siggi Sam) bassaleikari og fasteignasali frá Ísafirði er 42 ára. Sigurður, sem er af bassaleikaraættum (sonur Samúels Einarssonar í BG & Ingibjörgu) hefur leikið með ýmsum hljómsveitum á ferlinum s.s. Írafári, Hljómsveit Al Deilis, Bravó, Dægurlagakombóinu og Boogie knights. Berti Möller (Bertram Henry Möller) söngvari og…

Hamrahlíðarkórinn (1967-)

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð / Hamrahlíðarkórinn er án efa öflugasti menntaskólakór landsins, og þótt víðar væri leitað. Hann hefur staðið fremstur meðal kóra síðan 1967 þegar hann var stofnaður. Þorgerður Ingólfsdóttir hefur stjórnað kórnum frá upphafi en hún var tónlistarkennari við skólann, sem þá var nýstofnaður. Í raun er um tvo kóra að ræða, annars…

Afmælisbörn 10. janúar 2015

Afmælisbarn dagsins er eitt að þessu sinni: Sverrir Guðjónsson kontratenór er 65 ára, hann var snemma viðloðandi tónlist á æskustöðvum sínum á Hellissandi, söng sjö ára á söngskemmtun við undirleik föður síns (Guðjóns Matthíassonar) og söng inn á tvær litlar plötur aðeins tólf ára gamall. Hann nam söng hér heima og á Bretlandseyjum og hefur…

Afmælisbörn 8. janúar 2015

Fimm tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu á þessum ágæta degi, þau eru: Stórsöngvarinn og strætóbílstjórinn André Bachmann er 66 ára, hann er einna þekktastur fyrir framlag sitt til ýmissa styrktarverkefna í formi tónleika og plötuútgáfu en hefur einnig gefið út sólóplötur og sungið með hljómsveitum eins og Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar (Steina spil), Aríu, Gleðigjöfunum, Stefnumótum…

Afmælisbörn 7. janúar 2015

Enn og aftur er dagurinn fullur af tónlistartengdum afmælisbörnum: Kristján Hreinsson tónlistarmaður og ljóð/textaskáld með meiru er 58 ára. Fyrir utan að hafa samið mörg hundruð texta sem komið hafa út á plötum hefur Kristján gefið út fjölmargar plötur undir eigin nafni frá 1990. Stefán (Guðmundur) Óskarsson trúbador frá Raufarhöfn er 52 ára. Hann hefur…

Afmælisbörn 6. janúar 2015

Fjölmörg afmælisbörn koma við sögu í dag, þau eru eftirfarandi: Þórunni Lárusdóttur leik- og söngkonu skal fyrst nefna, hún er 42 ára gömul og hefur komið víða við í tónlistarlegum skilningi. Hún gaf t.a.m. út plötuna Álfar og tröll ásamt Friðrik Karlssyni 2006, jólaplötu með systrum sínum (Dísellu og Ingibjörgu) 2004 og hefur einnig sungið…

Elly Vilhjálms – Efni á plötum

Elly Vilhjálms [ep] Útgefandi: Íslenzkir tónar Útgáfunúmer: 45-2010 Ár: 1960 1. Ég vil fara upp í sveit 2. Kveðju sendir blærinn Flytjendur: Elly Vilhjálms – söngur KK-sextett – Jón Sigurðsson [2] (Jón bassi) – bassi og raddir – Jón Páll Bjarnason – gítar – Þórarinn Ólafsson – raddir og víbrafónn – Guðmundur Steingrímsson – trommur – Árni Scheving…

Afmælisbörn 5. janúar 2015

Í dag er aðeins eitt afmælisbarn: Davíð Þór Jónsson guðfræðingur er fimmtugur sem ku víst vera stórafmæli, hann er þekktari sem skemmtikraftur, fjölmiðlamaður, annar Radíus bræðra og sitthvað fleira fremur en að vera tónlistarmaður. Hann var þó söngvari hljómsveitarinnar Faríseanna sem gaf út plötu 1996, samdi þar bæði lög og texta, en hefur aukinheldur samið…

Durkheim (1991)

Hljómsveitin Durkheim frá Akranesi var starfandi 1991 og líklega eitthvað lengur. Sveitin komst í úrslit Músíktilraunanna það árið en þá var sveitin skipuð þeim Einari Harðarsyni gítarleikara, Guðmundi Klaxton trommuleikara, Einari Viðarssyni söngvara, Grétari Einarssyni bassaleikara og Steini Arnari Jónssyni básúnuleikara.

Afmælisbörn 4. janúar 2015

Þrír tónlistarmenn eiga afmæli í dag og eru eftirfarandi: Gunnar Þórðarson gítarleikari og lagahöfundur á hvorki meira né minna en sjötugs afmæli á þessum degi. Gunnar þarf varla að kynna, hann fæddist á Hólmavík, fluttist ungur til Keflavíkur, varð fyrst landsfrægur sem gítarleikari og aðal lagahöfundur bítlasveitarinnar Hljóma en síðar komu aðrar sveitir eins og…

Celsius (1976-77)

Diskópoppsveitin Celsius var töluvert áberandi það ár sem hún starfaði, 1976-77. Sveitin var stofnuð snemma vors 1976 af þeim Kristjáni Þ. Guðmundssyni hljómborðsleikara, Birgi Hrafnssyni gítarleikara, Sigurði Karlssyni trommuleikara og Pálma Gunnarssyni bassaleikara og söngvara en þeir voru allir þekktir tónlistarmenn og framarlega í íslensku tónlistarlífi. Fljótlega bættist Birgir Guðmundsson gítarleikari í hópinn og um…

Afmælisbörn 3. janúar 2015

Afmælisbörnin eru tvö í dag: Sölvi H. Blöndal liðsmaður Halleluwah og fyrrum Quarashi-liði á stórafmæli en hann er fertugur. Sölvi hafði verið í ýmsum sveitum áður en hann gerði það gott með Quarashi, s.s. Púff, SSSpan, Júpiters og Stjörnukisa svo dæmi séu tekin en starfrækir nú um þessar mundir dúettinn Halleluwah. Hann hefur einnig fengist…

Ásta Sveinsdóttir (1895-1973)

Ásta Sveinsdóttir (f. 1895 í Stykkishólmi) er ekki þekktasta nafnið í íslenskri tónlistarsögu en hún var fyrst og fremst lagahöfundur og tónlistarkennari, kenndi bæði á gítar og píanó. Tónlistin varð aldrei hennar aðalstarf en kennsluna stundaði hún samhliða rekstri mjólkurbúða og veitingastaða. Lög Ástu urðu einna þekktust í tengslum við sönglagakeppnir SKT hér á árum…

Ópíum (1999-2003)

Hljómsveitin Ópíum var stofnuð á Akureyri snemma árs 1999 og hófu snemma að spila á sveitaböllum fyrir norðan. Sama vor tók sveitin þátt í Músíktilraunum þar sem hún komst í úrslit en meðlimir voru þeir Sverrir Páll Snorrason trommuleikari, Hrafnkell Brimar Hallmundsson, Hjalti Jónsson söngvari og gítarleikari og Davíð Þ. Helgason bassaleikari. Tónlist Ópíum mátti skilgreina…

Óþarfa afskiptasemi (1982)

Hljómsveitin Óþarfa afskiptasemi starfaði 1982 og keppti í fyrstu Músíktilraunum Tónabæjar og SATT sem haldnar voru þá um haustið, hún komst ekki áfram í úrslit keppninnar. Engar upplýsingar liggja fyrir um sveitina.

Axlabandið [4] (1988)

Unglingasveit í Kópavogi bar nafnið Axlabandið árið 1988. Meðlimir þeirrar sveitar voru Kristinn H. Schram hljómborðsleikari, Jóhannes Hjaltason söngvari, Þröstur Elías Árnason gítarleikari, Ingólfur Ólafsson bassaleikari og Baldvin A.B. Aalen trommuleikari en sá síðastnefndi var síðar kunnur upptökumaður og trommuleikari Sóldaggar. Þessi sveit varð líklega ekki langlíf.

Afmælisbörn 1. janúar 2015

Eitt afmælisbarn kemur við sögu á þessum fyrsta degi ársins: Felix Bergsson söngvari og leikari er 48 ára gamall, hann vakti fyrst athygli í uppfærslu Verzlunarskólans á söngleiknum Rocky horror, varð síðar söngvari Greifanna, vann að barnaefni ásamt Gunnari Helgasyni og hóf enn síðar sólóferil eftir að hafa menntað sig í leiklist.

Aukinn þrýstingur (1988-89)

Hljómsveitin Aukinn þrýstingur var stofnuð í tengslum við útgáfu á plötu Valgeirs Guðjónssonar, Góðir Íslendingar, sem kom út fyrir jólin 1988. Tveir meðlimir sveitarinnar, gömlu kempurnar Björgvin Gíslason gítarleikari og Ásgeir Óskarsson trommuleikari, höfðu leikið undir á plötunni með Valgeiri og þegar til stóð að kynna hana með spilamennsku bættust ungliðarnir Björn Leifur Þórisson hljómborðsleikari (Lögmenn,…

Afmælisbörn 31. desember 2014

Á þessum síðasta degi ársins á þessi tónlistarmaður afmæli: Gísli Þór Gunnarsson trúbador (G.G. Gunn) er 56 ára, hann hefur verið lítt áberandi í íslensku tónlistarlífi en eftir hann liggja þó þrjár plötur. Gísli starfaði um tíma sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi en hefur lítið sinnt tónlistinni síðustu tvo áratugi.

Afmælisbörn 30. desember 2014

Afmæli eiga eftirtaldir í dag: Haukur Gröndal klarinettu- og saxófónleikari er 39 ára, hann hefur leikið með ýmsum hljómsveitum (mörgum djasstengdum) eins og Rodent, klezmersveitinni Schpilkas, Out of the loop og Reykjavik swing syndicate, og er víða gestur á útgefnum plötum. Hann hefur einnig sjálfur gefið út plötur. Bjarni „móhíkani“ (Þórður) Þórðarson (f. 1966) hefði…

Afmælisbörn 29. desember 2014

Þá er komið að afmælisbörnum dagsins: Alma Guðmundsdóttir söngkona er þrítug í dag. Alma er hvað kunnust fyrir framlag sitt til Nylons (síðar The Charlies) en hún er búsett í Bandaríkjunum ásamt öðrum Charlies stöllum. Vilhjálmur (Björgvin Guðmundsson) frá Skáholti (1907-63) hefði einnig átt þennan afmælisdag en hann var fyrst og fremst ljóðskáld og hafa…

Afmælisbörn 28. desember 2014

Eitt afmælisbarn er skráð á þessum degi: Elly Vilhjálms söngkona (f. 1935) hefði átt afmæli á þessum degi en hún lést 1995. Elly (Henný Eldey Vilhjálmsdóttir) var af Suðurnesjunum og var snemma uppgötvuð sem söngkona, hún söng með ýmsum hljómsveitum þess tíma, lengst af með KK-sextett, Orion kvintett og Hljómsveit Svavars Gests, en Svavar varð…

Gjörsamlega rökrétt framhald

Grísalappalísa – Rökrétt framhald 12T065, 2014 Grísalappalísa er rétt að verða þriggja ára gömul sveit en hefur þegar þetta er skrifað þó gefið út tvær breiðskífur og tvær vínylsmáskífur (sjö tommur) með ábreiðulögum eftir Megas og Stuðmenn þannig að hún er afkastameiri en flestar aðrar, það eru e.t.v. bara fáeinar sveitir eins og Utangarðsmenn og…

Afmælisbörn 24. desember 2014

Aðfangadagur hefur að geyma eitt afmælisbarn: Jóhann R. Kristjánsson tónlistarmaður frá Egilsstöðum er 53 ára, hann er ekki þekktasti tónlistarmaður þjóðarinnar en plata hans, Er eitthvað að? frá 1982 hefur öðlast cult-sess meðal poppfræðinga. Á sínum tíma hlaut platan afhroð gagnrýnenda en hefur nú fengið uppreist æru, og er í dag eftirsóttur safngripur.

Afmælisbörn 23. desember 2014

Eitt afmælisbarn er skráð á Þorláksmessu: Árni Björnsson tónskáld (f. 1905) hefði átt afmæli þennan dag en hann lést 1995. Árni var úr Kelduhverfinu, fékk snemma áhuga á orgelleik, kórstjórnun og tónsmíðum, og svo fór að hann fór til náms, fyrst innanlands og síðan utan, og lét draum sinn rætast. Þegar hann kom aftur til…

SG stemmingin rifjuð upp og fönguð

SG hljómplötur: 75 bráðskemmtileg dægurlög frá 1964 – 1982 í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá fyrstu útgáfu SG-hljómplatna (x3) – ýmsir  Sena SCD 643 (2014) Sena sendi nýverið frá sér þrefalda safnskífu sem hefur að geyma fjölbreytt úrval dægurlaga sem Svavar Gests, undir merkjum SG-hljómplatna gaf út á árunum 1964-82, reyndar gaf…

Afmælisbörn 21. desember 2014

Og þá eru það afmælisbörnin í dag: Pétur Grétarsson slagverksleikari er 56 ára, hann hefur mest tengst djassgeiranum og hefur leikið með ýmsum sveitum. Þar má til dæmis nefna Stórsveit Reykjavíkur, Tarzan, Arnald og kameldýrin, Karnival, Havanabandið og Smartband. Pétur hefur mikið starfað við kvikmyndir og leikhús, og leikið á hinar ýmsu plötur sem sessionleikari.…

Afmælisbörn 20. desember 2014

Aðeins eitt afmælisbarn er skráð í dag og þar er um að ræða stórafmæli: Hafnfirðingurinn Stefán Hjörleifsson gítarleikari Nýdanskrar er fimmtugur. Stefán hóf sinn tónlistarferil í heimabænum og var í hljómsveitinni Herramönnum ungur að árum. Á menntaskólaárum sínum gaf hann út plötuna Morgundagurinn sem hafði að geyma lög úr stuttmynd en síðan hefur hann verið…

Einkar áheyrilegt

Kiasmos – Kiasmos Erased tapes records ERATP062CD, 2014 Kiasmos er samstarfsverkefni Ólafs Arnalds og Færeyingsins Janus Rasmussen en þeir hafa unnið saman síðan 2007 og skapað eins konar instrumental rafteknó. Ólafur er flestum orðinn kunnur í dag en hann hefur gefið út nokkrar sólóplötur með tónlist sem hefur verið skilgreind sem nýklassík en framan af…

Afmælisbörn 19. desember 2014

Afmælisbörn dagsins eru: Ómar Diðriksson trúbador og hárskeri á Hellu er 52 ára gamall. Hann hefur starfrækt eigin sveitir, Síðasta sjens og Sveitasyni, en hefur einnig gefið út sólóplötur. Gréta Sigurjónsdóttir gítarleikari Dúkkulísanna frá Egilsstöðum er 49 ára gömul, hún hefur starfað að mestu fyrir austan og þá með sveitum eins og Teppinu hennar tengdamömmu,…

Ragnheiður þriðja vinsælasta sýning Íslensku óperunnar frá upphafi

Óperan Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson hefur nú skipað sér í þriðja sætið á lista yfir aðsóknarmestu óperusýningar Íslensku óperunnar frá stofnun hennar í upphafi 9. áratugarins. Hátt í 15.000 manns hafa nú séð sýninguna eða keypt miða á þær tvær aukasýningar sem verða á verkinu milli jóla og nýárs í Eldborg í…

Tíu öðruvísi jólaplötur

Heimili flestra hafa að geyma einhverjar jólaplötur, þær eru sjálfsagt flestar einhvers konar safnplötur enda kemur ógrynni slíka platna út á hverju ári, aðrar eru sykursætar og hátíðlegar jólaplötur einstaklinga og kóra, og á allan hátt hefðbundnar. Hér er hins vegar litið til öðruvísi og óvenjulegra jólaplatna, platna sem sjást alla jafna ekki í plötuhillum…