
Berti Möller
Tvö afmælisbörn eiga daginn í dag:
Sigurður Rúnar Samúelsson (Siggi Sam) bassaleikari og fasteignasali frá Ísafirði er 42 ára. Sigurður, sem er af bassaleikaraættum (sonur Samúels Einarssonar í BG & Ingibjörgu) hefur leikið með ýmsum hljómsveitum á ferlinum s.s. Írafári, Hljómsveit Al Deilis, Bravó, Dægurlagakombóinu og Boogie knights.
Berti Möller (Bertram Henry Möller) söngvari og lögreglumaður (1943-2007) átti einnig afmæli á þessum degi, hann söng með hljómsveitum frá sjötta og fram á áttunda áratug síðustu aldar með sveitum eins og Diskó sextett, Hljómsveit Svavars Gests, Eron, Falcon, Hljómsveit Elfars Berg, KK sextett, Lúdó og Stefán, Sextett Berta Möller og Úranus sextett. Berti lék einnig á bassa í einhverjum ofangreindra sveita.