Tónlistarhátíðin Ringulreið 2000 var haldin vorið 2000 á vegum Harðkjarna og Hins hússins á Granda.
Þar voru skráðar til leiks sextán hljómsveitir í harðari kantinum sem léku fyrir tónleikagesti í um átta tíma.
Meðal sveita sem komu fram á Ringulreið 2000 voru Forgarður helvítis, Snafu, Klink og Vígspá, svo fáeinar séu nefndar. Aðgangur var ókeypis að tónlistarhátíðinni.














































