Danshljómsveitin Sígild starfaði um tveggja ára skeið á Ísafirði á síðari hluta níunda áratug síðustu aldar (1986-88) og lék mestmegnis á dansleikjum á Ísafirði og nágrenni.
Meðlimir Sígildra voru þau Guðný Snorradóttir söngkona og gítarleikari, Halldór Guðmundsson trommuleikari og Sigurgeir Sverrisson hljómborðs- og harmonikkuleikari.
Sveitin hætti störfum þegar Guðný fluttist suður á höfuðborgarsvæðið haustið 1988.














































