Tóti og Danni (2006-13)

Tóti og Danni

Þeir Þórarinn Hannesson og Daníel Pétur Daníelsson komu margoft fram á öldurhúsum og skemmtunum, einkum á Siglufirði á árunum 2006 til 2013 undir nafninu Tóti og Danni.

Báðir léku þeir á gítara og sungu auk þess að nota alls kyns ásláttarhljóðfæri. Stundum kölluðu þeir sig Tótmon og Dafunkel og stundum Svilabandið.